Nýjasta nýtt - 29.1.2016 11:15:00

Til hamingju með afmælið og nýja vefinn KKÍ

Körfuknattleikssamband Íslands fagnar í dag 55 ára afmæli sambandsins og hefur af því tilefni opnað nýjan vef á slóðinni www.kki.is.

 

Körfuknattleikssamband Íslands fagnar í dag 55 ára afmæli sambandsins og hefur af því tilefni opnað nýjan vef á slóðinni www.kki.is. Vefurinn var unnin í nánu samstarfi við veflausnasvið Advania og markar opnun hans ákveðin tímamót, því nú eru liðin rúm 10 ár frá því fyrri vefur sambandsins var tekinn í notkun.

Klár fyrir snjalltækin 

Nýr vefur er snjalltækjavænn og á honum má skrá sig á póstlista KKÍ. Þannig má fá fréttir af starfsemi sambandsins. Alsherjar tiltekt var gerð í efni vefsins og er nú mun auðveldara fyrir stjórnendur vefsins að viðhalda efni hans.

Smekkfullur vefur af upplýsingum og tölfræði

Vefur KKÍ er mikið sóttur og fær vikulega um 25.000 innlit. Á honum er að finna ítarlegar upplýsingar um úrslit allra leikja í öllum flokkum, sem og upplýsingar um starf sambandsins og ítarlega tölfræðigreiningu sem uppfærist í rauntíma þegar leikir fara fram.

Gott samstarf skilar flottum vef

„Samstarfið með Advania hefur gengið alveg ljómandi vel“ segir Hannes Jónsson, formaður KKÍ. „Tryggvi Geir og Hákon, starfsmenn í vefdeild Advania, hafa verið frábærir í einu og öllu en þeir unnu vefinn ásamt Rúnari Birgi og Kristni Geir frá KKÍ og við gætum ekki hafa haft betri menn til að hjálpa okkur að gera allt það sem við vildum hafa á nýjum vef“.

„Við óskum KKÍ innilega til hamingju með 55 ára afmæli sambandsins og auðvitað opnun nýja vefsins“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. „Tækninni fleygir ört fram og notendur gera sífellt meiri kröfur til vefsíðna og virkni þeirra. Það er alltaf ánægjulegt að mæta kröfum og þörfum viðskiptavina og við erum stolt af okkar þætti í þessu verkefni.“

LiSA umsjónarkerfið uppfyllir allar þarfir vefsins

„Vefumsjónarkerfi Advania, LiSA, býður upp á allar þær lausnir sem þurfum fyrir nýja vefinn og það er von okkar að notendur KKÍ.is verði ánægðir með breytingarnar“ segir Kristinn Geir Pálsson, starfsmaður KKÍ og vefstjóri. „Innihald vefsins fékk algjöra yfirhalningu og nú státum við loks af vef sem er samhæfður við farsíma og spjaldtölvur, sem er alveg frábært“.
Það voru Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Ægir Már Þórisson forstjóri Advania sem opnuðu vefinn og vígðu formlega í höfuðstöðvum Advania.

Fleiri fréttir

Blogg
13.11.2025
Dell hefur kynnt nýjar fartölvulínur sem eru hannaðar til að mæta ólíkum þörfum á vinnustöðum. Til að einfalda valið eru þrír meginflokkar: Dell Pro, Dell Pro Premium og Dell Pro Max. Hver lína er sérsniðin að mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, og hjálpar starfsfólkinu að vera Pro í sinni vinnu.
Fréttir
12.11.2025
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins á Íslandi árið 2025 (e. Partner of the Year). Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania.
Fréttir
01.11.2025
Það var gleðistund þegar Advania afhenti Vísindagörðum fyrstu NVIDIA DGX Spark ofurtölvuna. Mikil eftirvænting hefur ríkt hér á landi enda er um að ræða nýjustu og minnstu ofurtölvu tæknirisans NVIDIA, sannkallaða byltingu í gervigreindarvinnslu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.