Nýjasta nýtt - 03.09.2012

Umhverfisstofnun semur við Advania

Umhverfisstofnun hefur samið við Advania um prentrekstur

Umhverfisstofnun hefur samið við Advania um allan prentrekstur á aðalskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Um er að ræða heildræna útvistun á þessu sviði í samvinnu Advania og Xerox.

"Í Prentrekstrarþjónustu Advania er allur rekstrar- og þjónustukostnaður innifalinn og viðskiptavinurinn greiðir einungis fyrir hvert prentað eintak. Prentrekstrarþjónusta er aðlöguð þörfum vinnustaða og sá sveigjanleiki var mikilvægur við undirbúning samstarfsins við Umhverfisstofnun.“ segir Karl Jóhann Gunnarsson hjá Advania.

Prentrekstrarþjónusta Advania er umhverfisvæn laus

„Okkar markmið er vitaskuld að vera til fyrirmyndar þegar kemur að notkun umhverfisvænna lausna í starfseminni. Við erum ánægð að vera komin með Svansmerktan pappír og umhverfismerkta vaxprentara frá Xerox með notendaviðmót, sem gerir okkur meðal annars kleift að mæla umhverfislegan ávinning. Ekki skemmir fyrir að við sjáum hugsanlega fram á umtalsverða lækkun á heildarkostnaði vegna prentunar," segir Gylfi Ástbjartsson, sviðsstjóri fjármála og reksturs hjá Umhverfisstofnun.

Öflug lausn á sviði prentþjónustu

"Við fáum ekki kröfuharðari viðskiptavin heldur en Umhverfisstofnun þegar kemur að umhverfisvænum lausnum. Það er afskaplega spennandi viðfangsefni að veita stofnuninni þjónustu í þessum efnum. Advania hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt lausnamengi á sviði prentþjónustu og þar er hagræðing fyrir viðskiptavini algjört lykilatriði," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.