Blogg - DD.05.YYYY

Viltu geta búið til upplýsingar úr gögnum í Microsoft Dynamics NAV?

Jet Reports gerir notendum kleift búa til öflugar greiningarskýrslur og er Jet Express innifalið í Microsoft Dynamics NAV.

Viðskiptalausnunum Microsoft Dynamics NAV 2009 og 2013 fylgir viðbót við Excel sem kallast Jet Reports. Jet Reports gerir notendum kleift að sækja gögn beint úr Dynamics Nav grunninum og búa til skýrslur úr þeim. Slíkar skýrslur geta hjálpað stjórnendum og almennum starfsmönnum að taka betri ákvarðanir í daglegum rekstri og auðvelda þær alla áætlunargerð.  

Mismunandi útgáfur af Jet Reports

Þrjár útgáfur af Jet Reports forritinu eru í boði. Forritið sem fylgir með Dynamics Nav er minnsta útgáfan og er hún jafnframt ókeypis.  

Samanburður á Jet Enterprise, Jet Essentials og Jet Express
Jet Enterprise  Jet Essentials Jet Express
Samanburður á vörum  Viðskiptagreind og skýrslugjöf.
Einföld greining upplýsing og
myndræn framsetning gagna.
Skýrslugerð í rauntíma í Excel.
Hentar fyrir ítarlega skýrslugjöf
og samvinnu
Skýrslugerð innbyggð í Dynamics NAV.
Auðvelt að búa til skýrslur í Excel
Skýrslugjöf í rauntíma ✓ ✓ ✓
Einföld skýrslugerð             ✓ ✓ ✓
Tilbúnar skýrslur og stjórnborð  ✓ ✓ ✓
Auðvelt að búa til nýjar skýrslur ✓ ✓  
Sjálfvirk skýrslugerð sem miðla má sjálfvirkt til notenda ✓ ✓  
Hægt að sjá gögn bakvið hverja skýrslu með einum smelli ✓ ✓  
Nýta má margar gagnalindir í sömu skýrslunni
✓    
Auðvelt og fljótlegt að greina og myndgera stór gagnasett ✓    
Hægt að skoða gögn úr rekstri frá mismunandi sjónarhornum ✓    
Viðskiptagreind og skýrslugjöf í einni lausn ✓    

Viðskiptagreind er ekki aðeins fyrir sérfræðinga

Aðeins þarf grunnþekkingu á Excel og Jet Reports til byrja að breyta gögnum í upplýsingar. Uppsetning Jet Express er fljótleg. Jet Reports sækir gögnin beint inn í Dynamics Nav og sýnir upplýsingarnar í Excel sem flestir þekkja og kunna á. 


Dæmi um skýrslur sem fylgja með Jet Reports

Hægt er að sækja 20 fyrirframskilgreindar skýrslur á vef Jet Reports.  Skýrslurnar eru úr öllum helstu kerfiseiningunum, fjárhag, sölu, innkaupum o.s.frv.
Með Jet Reports fylgir mikill fjöldi af tilbúnum skýrslum.

Fleiri fréttir

Blogg
21.01.2014
Á milli áranna 2011 til 2012 á sér stað risastökk í fjölda gæðavottaðra fyrirtækja hér á landi.
Blogg
15.01.2014
Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.
Blogg
09.01.2014
Fyrirtæki byggja almennt velgengni sína á ánægju viðskiptavina sinna með því að veita réttu þjónustuna með réttum hætti á réttum tíma.
Blogg
31.12.2013
Það er vandi að spá, sérstaklega um framtíðina. Sérfræðingar greiningafyrirtækisins Gartner láta það ekki aftra sér.
Blogg
10.12.2013
Microsoft leggur nú áherslu á að fyrirtæki geti uppfært Microsoft Dynamics NAV hratt og örugglega.
Blogg
25.11.2013
Við hjá BN notum app til að skrár úttektir á íbúðum.
Blogg
20.11.2013
Vinnumálastofnun (VMST) hefur opnað nýjan endurbættan þjónustu- og skráningarvef sem ber heitið Mínar síður.
Blogg
13.11.2013
Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað að eiga nýjan og fínan bíl en keyra hann á gömlum og slitnum dekkjum.
Blogg
06.11.2013
Ráðgjafafyrirtækið Gartner telur að fjórir kraftar muni hafa hvað mest áhrif á þróun upplýsingatækni í næstu framtíð; Cloud, Big Data, Mobile og Social.
Blogg
30.10.2013
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Blogg
23.10.2013
Til að ná sem bestum árangri verða stjórnendur og aðrir starfsmenn ávallt að vera með puttann á púlsinum.
Blogg
15.10.2013
Í nýrri útgáfu af TOK bókhaldskerfinu geta notendur sent og móttekið pappírslausa (rafræna) reikninga og sparað sér bæði tíma og peninga.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.