Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania stýrði línu hugbúnaðarþróunar á UTmessunni. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Fréttir - 10. febrúar 2026

Advania á UTmessunni 2026

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Um helgina fór UTmessan fram í 16. skipti í Hörpu. Advania var einn af samstarfsaðilum ráðstefnunnar og kynntum við meðal annars Signet lausnirnar, Skjöld og 90 daga gervigreindarhraðal Gervigreindarsetur Advania.

Á UTmessunni koma saman helstu tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf og rekstur fyrirtækja. 1.500 gestir mættu á ráðstefnudaginn og 12.000 á opna Tæknidaginn á laugardeginum

Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania stýrði línu hugbúnaðarþróunar á UTmessunni og Guðmundur Arnar Sigmundsson var með 30 mínútna gagnvirka netöryggisæfingu í Eldborgarsal Hörpu. Arnar Ágústsson stýrði svo Advania LIVE útsendingu frá Hörpu þar sem rætt var við áhugaverða fyrirlesara ráðstefnunnar. Við þökkum öllum sem litu við í básunum okkar á ráðstefnunni og á tæknideginum á laugardag.

Arnar Ágústsson ræðir við Jen Easterly aðalfyrirlesara UTmessunnar í Advania LIVE útsendingunni. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Arnar Ágústsson ræðir við Jen Easterly aðalfyrirlesara UTmessunnar í Advania LIVE útsendingunni. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Guðmundur Arnar fékk á svið til sín í æfingunni þá Runólf Þórhallsson yfirlögregluþjón almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Magna Sigurðsson forstöðumann Cert-is. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Starfsfólk Advania kynnti Signet vörurnar, Skjöld og Gervigreindarsetrið okkar í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Starfsfólk Advania kynnti Signet vörurnar, Skjöld og Gervigreindarsetrið okkar í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Sylvía Rut Sigfúsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Guðmundur Arnar Sigmundsson í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Sylvía Rut Sigfúsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Guðmundur Arnar Sigmundsson í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Signet teymið kynnti sínar lausnir í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Signet teymið kynnti sínar lausnir í Hörpu. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Guðmundur Arnar í Eldborg. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Guðmundur Arnar í Eldborg. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Valtýr Gíslason, Ljósbrá Logadóttir og Arnar Þór Kjærnested frá Innviðalausnum Advania létu sig ekki vanta. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Valtýr Gíslason, Ljósbrá Logadóttir og Arnar Þór Kjærnested frá Innviðalausnum Advania létu sig ekki vanta. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Upptakan frá Advania LIVE er aðgengileg á vefnum okkar. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Upptakan frá Advania LIVE er aðgengileg á vefnum okkar. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

12.000 gestir mættu á tæknidag UTmessunnar í ár. Mynd: Ský

12.000 gestir mættu á tæknidag UTmessunnar í ár. Mynd: Ský

Advania LIVE útsendingin var frá 2. hæð Hörpu. Mynd: Ský

Advania LIVE útsendingin var frá 2. hæð Hörpu. Mynd: Ský

Fleiri fréttir

Myndbönd, Nýjasta nýtt
04.04.2019
Nú er sjálfsafgreiðsla valkostur í öllum stærstu matvörukeðjum landsins. Við spurðum neytendur hvernig þeim líkar sjálfsafgreiðslan og þetta eru svörin sem við fengum.
Myndbönd
04.04.2019
50skills er nú hluti af mannauðslausnamengi Advania. Svona lýsa notendur upplifun sinni af mannauðslausninni 50skills.
Blogg
04.04.2019
Viðskiptavinamiðuð stefna er eitt heitasta slagorðið í viðskiptaheiminum í dag. Hvers vegna ættu fyrirtæki að tileikna sér slíka stefnu?
Blogg
14.03.2019
Í fjórðu og síðustu greininni í greinaröðinni um Microsoft Dynamics 365 Marketing fer Andri yfir framkvæmdarstigið og fjallar um raunverulegt dæmi um markaðs- og sölupípu.
Blogg
08.03.2019
Sjálfvirknivæðing er mikið til umræðu í heimi upplýsingatækninnar um þessar mundir. Það kemur ekki mikið á óvart, enda boðar þessi tækni mikil tækifæri. Hér eru sex góð ráð fyrir þá sem eru að íhuga sjálfvirknivæðingu í sínum fyrirtækjum.
Mannauðslausnir, Blogg
28.02.2019
Það er áskorun að finna rétt fólk til starfa. Til að mæta þeirri áskorun þurfa íslensk fyrirtæki að tileinka sér nýjar aðferðir til þess að ná til rétta markhópsins, finna rétta starfsmanninn og stuðla að starfsánægju hans. Að veðja á ranga manneskju er dýrt og dapurlegt ferli fyrir alla sem að því koma.
Blogg
26.02.2019
Áður auglýstu vinnustaðir eftir starfsfólki með auglýsingum í verslunum og prentmiðlum. Með komu internetsins hefur normið breyst.
Blogg
26.02.2019
Í þessari þriðju grein Andra Más Helgasonar um Microsoft Dynamics 365 Marketing fjallar hann um leiðir til að einfalda kaupákvörðunarferli tilvonandi viðskiptavina
Blogg
22.02.2019
Eitt af stærri vandamálum upplýsingatæknigeirans í dag er sú staðreynd að fólk áttar sig ekki á því að það getur verið skotmark glæpasamtaka.
Blogg
14.02.2019
Ef þú vilt selja vöru eða þjónustu er algjört grundvallaratriði að væntanlegur viðskiptavinur öðlist vitneskju um vörumerkið þitt. Í þessari grein verður fjallað um hvernig hægt er að komast fyrr inn í vegferð viðskiptavinarins
Myndbönd
04.02.2019
Fyrir um ári síðan flutti Advania verslun sína alfarið á netið. En hvernig hefur sú reynsla gefist og að hverju er helst að huga í slíkum flutningum?
Myndbönd
04.02.2019
Þegar þú átt von á mikilvægri sendingu, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.