Advania hlýtur verðlaunin Samstarfsaðili 2026 ársins á Íslandi. Mynd/Microsoft

Fréttir - 11. nóvember 2026

Advania er Microsoft samstarfsaðili ársins á Íslandi annað árið í röð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).

Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania. Þetta er annað árið í röð sem Advania á Íslandi hlýtur þessa viðurkenningu.

Fyrirtækið er með þessu heiðrað ásamt fremstu samstarfsaðilum Microsoft á heimsvísu fyrir framúrskarandi nýsköpun og innleiðingu á lausnum fyrir viðskiptavini, byggðum á Microsoft tækni.

„Ég er gríðarlega stoltur af þessum frábæra árangri og öllu því öfluga starfsfólki Advania sem gerði þessa viðurkenningu að veruleika. Að vera valin Microsoft Partner of the Year á Íslandi er mikil viðurkenning á þeirri sérþekkingu, metnaði og liðsheild sem býr í teyminu okkar. Þetta sýnir hverju við getum áorkað með þéttu samstarfi með viðskiptavinum okkar og Microsoft og hvetur okkur til að halda áfram að byggja ofan á þann góða grunn sem við höfum skapað,“ segir Sæmundur Valdimarsson, forstöðumaður hjá Rekstrarlausnum Advania, en hann tekur formlega við viðurkenningunni á Microsoft Ignite 2026 í San Francisco í næstu viku.

Microsoft Partner of the Year verðlaunin eru veitt til þeirra samstarfsaðila sem þóttu framúrskarandi á árinu en valið er úr þúsundum tilnefninga frá yfir hundrað löndum.

Nánar má lesa um viðurkenninguna á vef Microsoft.

Fleiri fréttir

Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.