Advania tilnefnt til Oracle-verðlauna
Advania hlýtur tilnefningu til Oracle Change Agent verðlaunanna. Þau eru veitt fyrirtækjum sem náð hafa framúrskarandi árangri við að stuðla að nýsköpun, sjálfbærni og stafrænni umbreytingu hjá viðskiptavinum sínum.

Tilefni tilnefningarinnar eru Oracle lausnir sem hafa verið þróaðar og innleiddar fyrir Íslenska ríkið og innleiðing Oracle ERP/EPM fyrir Landsbankann. Þar ber hæst að nefna lausn sem notuð er til að auka sjálfvirkni í móttöku og bókun reikninga.
„Eitt af því sem gerir Ísland frábrugðið mörgum öðrum mörkuðum er útbreidd notkun á XML reikningum. Að auki þá er launakostnaður hár hér á landi sem gerir auka kröfu á sjálfvirkni í ferlum eins og bókun reikninga. Við smíðuðum því skýjalausn fyrir Oracle Fusion ERP kerfið sem sér um að bókar rafræna reikninga sjálfkrafa. Þessi lausn hefur sparað mikla vinnu í meðhöndlun rafrænna reikninga ásamt því að fækka villum og gera ferlið skilvirkara,“ segir Árný Elfa Helgadóttir Oracle EBS ráðgjafa Advania.