Blogg - 21. maí 2026

Dell Pro Rugged – þegar venjulegar fartölvur einfaldlega duga ekki

Sævar Ríkharðsson
Vörustjóri Dell á Íslandi

Við gerum þá kröfu á tækin okkar í dag að séu öflug og áreiðanleg hvar og hvenær sem er án þess að gefa eftir í gæðum. En hvað gerist þegar vinnan er ekki inná skrifstofu heldur verkstæði, byggingasvæði, vöruhúsi, löggæslustörfum eða utandyra? Þarna kemur Dell Pro Rugged línan inn. Hún gerð fyrir þá allra kröfuhörðustu!

Dell Pro Rugged línan er sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi aðstæður þar sem hefðbundnar fartölvur þola einfaldlega ekki álagið. Hér er fókusinn á endingu, öryggi og stöðug afköst – sama hvar unnið er.

Hvað eru Rugged tölvur?

Rugged (eða „harðgerðar“) fartölvur og spjaldtölvur eru hannaðar til að standast erfiðustu aðstæður og eru sérstaklega varðar fyrir:

  • Ryki og raka
  • Höggum og falli
  • Mikinn hita og kulda
  • Titring og erfiðar vinnuaðstæður

Dell Pro Rugged tækin eru prófuð samkvæmt alþjóðlegum stöðlum (t.d. MIL-STD og IP-vottun) sem tryggja að þau virki áreiðanlega jafnvel við mjög krefjandi aðstæður.

Sjáðu í vefverslun:
404

Helstu kostir Dell Pro Rugged

Frábær ending og áreiðanleiki

  • Dell Pro Rugged vélar eru byggðar til að endast. Þær þola fall, titring og miklar hitasveiflur, sem minnkar líkur á bilunum, skemmdum og rekstrartruflunum við erfiðar aðstæður.

Hámarks afköst, jafnvel í erfiðum aðstæðum

  • Með nýjustu Intel® Core Ultra örgjörvum og AI-örgjörvum er hægt að keyra krefjandi forrit óháð staðsetningu notendans.
  • Skjáir með mikilli birtu (allt að 1200 nits) gera það að verkum að hægt er að vinna í beinu sólarljósi og jafnvel með vettlingum.

Vel tengd

  • Wi-Fi 7 og 5G valkostir
  • Innbyggt GPS
  • Hot-swappable rafhlöður (hægt að skipta út án þess að slökkva á vélinni)

Lægri rekstrarkostnaður til lengri tíma

  • Rannsóknir sýna að Rugged tæki bila mun sjaldnar en hefðbundnar fartölvur, sem minnkar niðurtíma og viðhaldskostnað. Þess vegna eru Dell Pro Rugged vélarnar ekki endurnýjaðar jafn oft og aðrar tölvur. Sé ekki talað um ef aðstæður eru krefjandi.

Óháð rafmagni

  • Vélarnar fást með Hot-swappable (útskiptanlegum) rafhlöðum. Þú getur verið með tvær rafhlöður í vélinni og jafnvel skipt annarri þeirra út fyrir hlaðna rafhlöðu án þess að slökkva á vélinni.

Fleiri fréttir

Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.