Blogg - 9. janúar 2026

Er þitt fyrirtæki að skoða Adobe Creative Cloud?

Sigurður Rúnar N. Marinósson
Sölusérfræðingur

Í dag hefur aldrei verið jafn mikilvægt fyrir fyrirtæki að skapa sterkt vörumerki og flott myndrænt efni sem nær til viðskiptavina. Eins og mörg fyrirtæki þekkja nú þegar, er Adobe Creative Cloud Pro besta lausnin í verkið.

Svítan er sérstaklega hönnuð með fyrirtæki í huga og gerir alla samvinnu sérstaklega einfalda. Í áskriftinni er yfir 20 öflug forrit eins og Photoshop, Illustrator, Premiere Pro og Acrobat Pro, auk nýrra lausna sem nýta gervigreind til að flýta vinnunni.

Með Creative Cloud Pro getur þú:

  • Hannað efni hratt og örugglega. Allt frá myndvinnslu og grafík til myndbanda og PDF skjala.
  • Unnið með teyminu hvar sem er. Deildu gögnum og fáðu umsagnir á einfaldan hátt.
  • Nýtt gervigreindarverkfæri til að gera vinnuna hraðari og skilvirkari.
  • Stjórnað leyfum og notendum í Admin Console og tryggt öryggi gagna.
Samvinnan verður hreinlega skemmtileg með Creative Cloud Pro

Samvinnan verður hreinlega skemmtileg með Creative Cloud Pro

Af hverju Advania?

Advania er einn stærsti söluaðili Adobe leyfa til fyrirtækja á Íslandi. Við bjóðum:

  • Afburða þjónustu og ráðgjöf frá sérfræðingum sem þekkja Adobe lausnir eins og handabakið á sér.
  • Sveigjanlegar lausnir sem henta bæði litlum og stórum fyrirtækjum.
  • Hjálp við uppsetningu og leyfisstjórnun svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli.

Viltu vita meira eða fá tilboð?

Hafðu samband við sérfræðinga Advania og tryggðu þér bestu Adobe lausnirnar fyrir þitt fyrirtæki.

Fleiri fréttir

Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Fréttir
20.10.2026
Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.
Blogg
19.10.2026
Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.
Fréttir
15.10.2026
Í Öryggisoktóber bjóðum við upp á fjóra opna veffundi þar sem netöryggi á tímum gervigreindar er í fyrirrúmi.
Power Platform, Blogg
15.10.2026
Á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í ár var Advania með bás þar sem við kynntum Power Platform lausnir sem hjálpa sveitarfélögum að einfalda ferla, bæta þjónustu og nýta tíma starfsfólks betur.
F&O, Blogg
14.10.2026
Viðskiptalausnasvið Advania hélt morgunverðarfund þann 13. október 2026. Kynntar voru íslenskar sérlausnir fyrir Dynamics 365 Finance & Operations.
Blogg
12.10.2026
Fleiri bókanir og fleiri gestir eru góðar fréttir. En vöxtur skilar sér ekki alltaf í betri afkomu. Oft fylgir honum meiri handavinna og meira álag á starfsfólk, án þess að framlegðin eða upplifun gesta batni að sama skapi.
Blogg
12.10.2026
Í mörgum fyrirtækjum fer stór hluti markaðs- og sölukostnaðar í að ná til nýrra viðskiptavina. Það er skiljanlegt. Vöxtur er oft mældur í nýjum samningum, nýjum viðskiptum og nýjum tækifærum. Á sama tíma gleymist stundum að stærstu vaxtartækifærin liggja oft hjá þeim viðskiptavinum sem eru þegar í viðskiptum.
Fréttir
08.10.2026
Advania hefur hlotið verðlaunin Innovation Partner of the Year frá Omdia fyrir gervigreindarstefnu félagsins og þróun Advania ALT. Tilkynnt var um verðlaunin á Canalys Forum EMEA í Barcelona í dag.
Fréttir
03.10.2026
Mannauðsdagurinn fór fram í Hörpu föstudaginn 2. október og Advania var einn af stærstu samstarfsaðilum ráðstefnunnar eins og síðustu ár. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti vettvangur stjórnunar og mannauðsmála hér á landi, þar sem mannauðsfólk, stjórnendur og ráðgjafar úr öllu atvinnulífinu koma saman.
Blogg
01.10.2026
Það var mikið um að vera á Xperience 2026, árlegri ráðstefnu Genesys í Las Vegas í byrjun september, og nýjungarnar voru bæði margar og spennandi. Skilaboðin voru skýr: tilraunaskeiði gervigreindar í þjónustu er lokið og nú snýst allt um að láta gervigreind, fólk og kerfi vinna saman í takt.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.