Mannauðsdagurinn 2026 í Hörpu var einstaklega vel heppnaður. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 3. október 2026

Forysta er liðsíþrótt og mannauðsgögn „sökka“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Mannauðsdagurinn fór fram í Hörpu föstudaginn 2. október og Advania var einn af stærstu samstarfsaðilum ráðstefnunnar eins og síðustu ár. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti vettvangur stjórnunar og mannauðsmála hér á landi, þar sem mannauðsfólk, stjórnendur og ráðgjafar úr öllu atvinnulífinu koma saman.

Teamtailor og Vera kynnt gestum

Mannauðslausnir Advania tóku á móti gestum á eigin bás í Hörpuhorni og einnig á sérstökum Teamtailor bás í Norðurljósasal, þar sem nýja ráðningarkerfið var kynnt fyrir íslensku atvinnulífi.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Sérfræðingar frá Teamtailor komu til landsins og svöruðu spurningum gesta ásamt sérfræðingum Mannauðslausna. Á básunum gátu gestir kynnt sér allar lausnir Mannauðslausna og einnig Veru, nýja kynslóð viðverukerfa sem lítur dagsins ljós um áramótin. Hundruð gesta heimsóttu básana yfir daginn og fengu sér góðan kaffibolla með mannauðssérfræðingum Advania.

Kasper Lehm og Alexandros Papadopoulos frá Teamtailor. Mynd/Hörður Sveinsson

Kasper Lehm og Alexandros Papadopoulos frá Teamtailor. Mynd/Hörður Sveinsson

Mannauðsgögn án glansmynda

„Hæ, ég heiti Lotta og ég þoli ekki mannauðsgögn.,“  Þannig hóf Anna Lotta Michaelsdóttir, mannauðssérfræðingur hjá Advania, erindi sitt Mannauðsgagnamartröðin... og fyrstu skrefin út úr henni. Boðskapurinn var þó ekki að gefast upp á gögnunum, heldur þvert á móti.

„Þó þau séu ekki í uppáhaldi, þá eru þau lykillinn okkar að því að gera okkur skiljanleg inn í æðstu stjórn,“ sagði hún. Vel unnin gögn sýna mannauðsfólki hvort aðgerðir skila árangri, hvort sem það er lægra veikindahlutfall eða meiri ánægja starfsfólks.

Anna Lotta er menntuð í eðlisfræði og vinnusálfræði og bætti við sig námi í gagnavísindum til að komast að því hvers vegna mannauðsgögn reynast svona erfið. Hún benti á þrjár ástæður. Gögnin verða til í mannlegum og óskýrum ferlum, ekki þegar tvö kerfi tala saman. Mannauðsfólk hefur valið starfið af áhuga á fólki frekar en gögnum. Sú þriðja er að kerfin sem notuð eru tala sjaldnast vel saman, svo endirinn verður oft að tjasla saman Excel skrám seint á fimmtudagskvöldi.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Enginn heilagur sannleikur

Góðu fréttirnar, að hennar sögn, eru að enginn þarf að fara í gagnavísindanám til að laga þetta. Vinnan er tímafrek, en langt frá því að vera óyfirstíganleg. Hún kynnti þrjú grunnhugtök úr gagnastjórnun sem bera fólk langt. Eignarhald, þar sem ein manneskja ber ábyrgð á hverjum mælikvarða. Skilgreiningu, þar sem forsendurnar eru ákveðnar, til dæmis hvort sumarstarfsfólk og verktakar teljist til starfsmanna. Að lokum skjölun, þar sem skilgreiningin og ferlið eru skráð á stað sem allir hafa aðgang að.

Hún tók dæmi af því að reikna hlutfall starfsfólks sem fékk formlegt starfsmannasamtal. Ef aðeins voru talin samtöl merkt sem lokið var hlutfallið 13%, en 97% ef samtöl í vinnslu voru tekin með, og hvorug talan var rétt. Lausnin er ekki að finna hina einu réttu skilgreiningu, heldur að ákveða hvað telst gilt, skrá það og gera eins í hvert sinn. Þá verða tölurnar samanburðarhæfar.

„Það er ekki til heilagur sannleikur í tölfræði, en ef þú ert skýr með hvaða forsendur liggja fyrir tölunni þinni, skráir það og beitir alltaf eins, þá kemstu nógu nálægt sannleikanum,“ sagði Anna Lotta.

Hún hafði lofað gestum engum gervigreindartrixum, en benti þó á í lokin að sá sem klárar þessi skref er um leið fullkomlega tilbúinn að láta gervigreind halda utan um tölurnar á gegnsæjan hátt.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Forysta er liðsíþrótt

Ægir Þórisson, framkvæmdastjóri mannauðsmála (e. Chief People Officer) hjá Advania samstæðunni, tók þátt í pallborðsumræðum um stöðu mannauðsstjóra í skipuriti fyrirtækja. Með honum á sviði voru Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes, Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg, og Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans. John Mark Williams, forstjóri The Institute of Leadership, stýrði umræðunum.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Ægir hvatti mannauðsstjóra sem taka sæti í framkvæmdastjórn til að líta ekki á sig sem fulltrúa eins fagsviðs, heldur sem þátttakendur í rekstri fyrirtækisins í heild.

„Líttu á forystu sem liðsíþrótt. Að sitja í framkvæmdastjórn snýst ekki um að ólík fagsvið komi saman, deili upplýsingum og festist hvert í sinni sérþekkingu,“ sagði Ægir.

„Taktu líka virkan þátt í hinum umræðunum. Þú ert hluti af teymi sem rekur fyrirtæki, svo líttu á hlutverk þitt sem þátttöku í rekstrinum en ekki bara baráttu fyrir málefnum mannauðssviðsins.“

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Tengslamyndun í boði Advania

Ráðstefnunni lauk með kokteilboði í boði Advania, þar sem gestir nutu léttra veitinga og héldu samtölum dagsins áfram.

„Mannauðsdagurinn er einn mikilvægasti dagur ársins hjá okkur. Það var frábært að hitta svona marga viðskiptavini og samstarfsaðila og fá loksins að sýna Teamtailor. Við þökkum öllum sem komu við á básunum okkar og hlökkum til að fylgja samtölunum eftir,“ segir Díana Björk Olsen, forstöðumaður Mannauðslausna Advania.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Fleiri fréttir

Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.