Fréttir, F&O - 25. september 2026

Heimsókn frá Ferranti vegna innleiðingar hjá Orkusölunni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Nýverið tók Advania á móti samstarfsfólki frá Ferranti vegna innleiðingar á Microsoft Dynamics 365 Finance & Operations og MECOMS 365 hjá Orkusölunni. Heimsóknin var mikilvægur þáttur í verkefninu og gaf tækifæri til að vinna saman á sama stað, efla tengslin og undirbúa lokasprett verkefnisins.

Öflugt samstarf í mikilvægu verkefni

Innleiðing F&O og MECOMS 365 hjá Orkusölunni er umfangsmikið samstarfsverkefni þar sem sérþekking og reynsla Orkusölunnar, Advania og Ferranti nýtist sameiginlega. Verkefnateymið býr yfir gríðarlegri þekkingu og vinnur þétt saman en það fylgja því áskoranir að samþætta þrjú teymi og vinna á skilvirkan hátt.

Mikilvægt að vinna saman á sama stað

Á meðan á heimsókninni stóð voru haldnar vinnustofur bæði hjá Advania og Orkusölunni. Þar gafst teyminu tækifæri til að setjast saman, ræða verkefnið frá ólíkum sjónarhornum og byggja upp sameiginlegan skilning á stöðunni og næstu skrefum.

Þótt fjarfundir og stafræn samvinna séu stór hluti af daglegu starfi er einnig mikilvægt að hittast augliti til auglitis. Þegar fólk vinnur saman á sama stað flæða samtölin betur, spurningum er svarað hraðar og auðveldara verður að taka ákvarðanir og ná fram niðurstöðum.

Vinnustofurnar styrktu tengslin milli teymanna og hjálpuðu við að ná fram ákvörðunum og mikilvægum umræðum fyrir lokasprett verkefnisins.

Sameiginleg sýn á næstu skref

Heimsókninni lauk með sameiginlegri og skýrari sýn á áframhaldandi vinnu og auknum krafti í verkefninu. Teymin fóru frá vinnustofunum með sameiginlega forgangsröðun og sterkan grunn fyrir næsta áfanga innleiðingarinnar.

Samstarf sem skapar verðmæti

Verkefnið sýnir vel hvernig öflugt samstarf við viðskiptavini og alþjóðlega samstarfsaðila skapar verðmæti. Með því að leiða saman rétta fólkið, vinna markvisst og gefa samtalinu góðan tíma verður til sameiginlegur taktur sem styrkir bæði verkefnið og samstarfið til framtíðar.

Við hjá Advania erum stolt af því að taka þátt í þessari mikilvægu innleiðingu með Orkusölunni og Ferranti og hlökkum til að halda áfram að byggja upp lausnina og samstarfið á komandi misserum.

Fleiri fréttir

Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Blogg
07.04.2015
Nú eru þrjú ár síðan við Advania bloggið kom fyrst út og er þetta færsla númer 136.
Blogg
31.03.2015
Ný rannsókn frá greiningarfyrirtækinu Gartner sýnir mikla þörf hjá stjórnendum og sérfræðingum á að hafa lykilupplýsingar úr rekstri óháð stað og stund.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.