Fréttir - 11. febrúar 2026

Hlýtur sérstaka viðurkenningu frá Red Hat

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Ármann Jakob Pálsson sérfræðingur hjá Rekstrarlausnum Advania hefur hlotið sérstaka Community Ambassador viðurkenningu frá Red Hat.

Ármann Jakob starfar sem Linux sérfræðingur og hlýtur þessa viðurkenningu fyrir að deila sinni þekkingu og veita öðrum ráðgjöf á samskiptasíðum Red Hat.

„Þessi viðurkenning er staðfesting á þeirri þekkingu sem við hjá Advania höfum í rekstri á Linux kerfum. Þegar Linux áskoranir koma upp og tími og kunnátta innanhús er takmörkuð þá erum við Linux deildin þín og stígum inn í lítil sem stór verkefni,“ segir Ármann Jakob.

„Red Hat Learning Community Ambassador prógrammið heiðrar þá sem með framlagi sínu styrkja okkar samfélag og hjálpa öðrum að vaxa. Þetta er fólkið sem deilir þekkingu sinni áfram og styður við aðra meðlimi,“ segir í tilkynningu frá Red Hat.

Advania býður fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu fyrir Linux. Allt frá uppsetningu og uppfærslum til viðhalds og vöktunar með áherslu á áreiðanleika, sveigjanleika og öryggi í rekstri.

Fleiri fréttir

Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.