Blogg - 2. júní 2026

Noona bætist í hóp Salesforce viðskiptavina Advania

Aron Kári Aðalsteinsson

Óli Þór Gunnarsson
Vörustjóri

Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.

Innleiðing CRM lausnar eins og Salesforce snýst ekki eingöngu um tæknilega uppsetningu heldur um að bæta yfirsýn, styrkja ferla og skapa betri upplifun fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini. Með lausninni hefur Noona stigið skref í átt að aukinni skilvirkni og gagnadrifinni ákvarðanatöku sem styður við vöxt og áframhaldandi þróun fyrirtækisins.

Öflug CRM lausn er jafnframt grunnur að frekari stafrænum umbreytingum, þar á meðal aukinni sjálfvirkni og nýtingu gervigreindar í þjónustu og samskiptum við viðskiptavini. Með Salesforce hefur Noona skapað sér traustan grunn fyrir slík næstu skref.

Samstarfið við teymið hjá Noona hefur gengið afar vel og einkenndist af skýrri sýn, góðu samstarfi og metnaði til að ná árangri.

„Innleiðingin á Salesforce hefur hjálpað okkur að ná betri yfirsýn yfir þjónustuna og styðja betur við okkar viðskiptavini. Samstarfið við Advania hefur verið faglegt og lausnarmiðað frá upphafi.“

- Tinna Jóhannsdóttir, teymisstjóri þjónustu hjá Noona

Í tilefni af þessum áfanga heimsóttum við hjá Advania teymið hjá Noona og færðum þeim köku til að fagna árangrinum, augnablik sem undirstrikar gott samstarf og sameiginlegan árangur.

Við óskum Noona innilega til hamingju með innleiðinguna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Fleiri fréttir

Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.