Ráðstefnan DynamicsMinds, Portorož í Slóveníu

F&O - 5.2.2026 16:00:39

Ráðstefna Dynamic Minds

Þann 25.-27. maí næstkomandi verður haldin ráðstefnan DynamicsMinds í Portorož í Slóveníu.  Ráðstefnudagskráin er einstaklega glæsileg og má segja að hún sé í líkingu við þær notendaráðstefnur sem voru áður á dagskrá fyrir Covid.

Gunnur Jónsdóttir
Forstöðumaður, Viðskiptalausnir

Ráðstefnan býður uppá dagskrá tengda Dynamics 365 F&O, Power Platform og Business Central

DynamicsMinds er glæsileg notendaráðstefna fyrir Dynamics 365 og Power Platform. Á ráðstefnunni verða yfir 1.000 þátttakendur, 200+ fræðsluerindi, 190+ fyrirlesarar og fjölbreyttur hópur samstarfsaðila víðs vegar að úr BizApps-heiminum.

Ráðstefnan er frábær vettvangur til að efla þekkingu á Dynamics 365 Finance & Operations, miðla reynslu, tengjast sérfræðingum og sjá nýjustu lausnir á markaðnum í beinni. Áhersla er lögð á samvinnu, innblástur og að styrkja tengsl innan Dynamics-samfélagsins.

Við hjá Advania munum senda okkar eigið teymi á staðinn til að fylgjast með nýjustu straumum, taka þátt í umræðum og koma heim með innsýn sem nýtist beint í ráðgjöf, þjónustu og innleiðingar í Dynamics 365 F&O.

Við hvetjum alla áhugasama til að kynna sér ráðstefnuna og taka þátt.

Fleiri fréttir

Blogg
30.04.2026
Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.
Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.