Fréttir - 22. apríl 2026

Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania er komin út

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.

Í skýrslunni er fjallað um samstæðuna í heild og svo hvert land fyrir sig, þar á meðal Advania á Íslandi.

Í árs- og sjálfbærniskýrslu 2025 kemur meðal annars fram að tekjur Advania samstæðunnar jukust um 22% á árinu, einkum vegna vaxandi rekstrarþjónustu og  stefnumótandi yfirtaka. Sú stefna hefur nær þrefaldað vöxt félagsins frá árinu 2021.

Advania samstæðan heldur áram að vaxa með skilvirkum hætti, með áframhaldandi áherslu á að styðja við viðskiptavini og að skapa hjá þeim raunverulegar rekstrarbreytingar og aukna verðmætasköpun.

Hjá Advania samstæðunni starfa alls um 5.500 sérfræðingar á 53 starfsstöðvum í níu löndum, þar af um 550 á Íslandi.

Árs- og sjálfbærniskýrslu Advania Group fyrir 2025 má nálgast á ensku hér á vefnum okkar.

Fleiri fréttir

Blogg
12.10.2026
Fleiri bókanir og fleiri gestir eru góðar fréttir. En vöxtur skilar sér ekki alltaf í betri afkomu. Oft fylgir honum meiri handavinna og meira álag á starfsfólk, án þess að framlegðin eða upplifun gesta batni að sama skapi.
Blogg
12.10.2026
Í mörgum fyrirtækjum fer stór hluti markaðs- og sölukostnaðar í að ná til nýrra viðskiptavina. Það er skiljanlegt. Vöxtur er oft mældur í nýjum samningum, nýjum viðskiptum og nýjum tækifærum. Á sama tíma gleymist stundum að stærstu vaxtartækifærin liggja oft hjá þeim viðskiptavinum sem eru þegar í viðskiptum.
Fréttir
08.10.2026
Advania hefur hlotið verðlaunin Innovation Partner of the Year frá Omdia fyrir gervigreindarstefnu félagsins og þróun Advania ALT. Tilkynnt var um verðlaunin á Canalys Forum EMEA í Barcelona í dag.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.