Blogg - 6. mars 2026

Stóru markmiði náð fimm árum á undan áætlun

Ásta Maack
verkefnastjóri sjálfbærni hjá Advania

Advania á Íslandi hefur nú náð SBTi: Scope 3 losunarmarkmiðinu. SBTi (Science Based Targets initiative) er alþjóðlegt viðmið sem hjálpar fyrirtækjum að setja raunhæf losunarmarkmið byggð á loftslagsvísindum, í takt við 1,5°C markmið Parísarsamkomulagsins.

Advania setti sér slík markmið árið 2021, um að draga úr losun á Íslandi fyrir árið 2030. Markmiðin voru yfirfarin og staðfest af SBTi, sem tryggir að við séum að draga úr losun á gagnsæjan og samanburðarhæfan hátt, en ekki með merkingarlausum orðum.

Við settum okkur tvö markmið fram til 2030:

  1. Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 50% í Scope 1 + 2
  2. Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 52% í Scope 3

Samkvæmt útreikningum í febrúar, höfum við  náð markmiðinu okkar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 65% í Scope 3. Þetta sýnir að við náðum markmiðinu okkar fimm árum á undan áætlun og drógum margfalt meira úr losuninni en við héldum mögulegt.

Fleiri fréttir

Blogg
17.04.2012
Tíminn er dýrmæt auðlind sem vert er að fara vel með. Margir kannast hins vegar við að eyða miklum tíma í að leita að skjölum.
Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.