Blogg - 24. ágúst 2026

Verkada á Íslandi: Snjallara öryggi og fullkomin tímasetning

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu.  En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.

Þegar minnið verður munaðarvara

Hefðbundin öryggiskerfi byggja á því að safna öllu efni á staðbundna netþjóna, troðfulla af hörðum diskum og vinnsluminni. Því fleiri myndavélar og því hærri upplausn, því meira minni þarf, og þar liggur vandinn.

Á fyrri hluta árs 2026 hefur verð á vinnsluminni (DRAM) fyrir netþjóna rokið upp úr öllu valdi. Sumar greiningar nefna nær 90% hækkun á einum ársfjórðungi, og verð á SSD-geymslum hefur fylgt fast á eftir. Ástæðan er einföld: gervigreindin er að soga til sín nánast alla framleiðslugetu heimsins á minni, og sérfræðingar telja að ástandið haldist út árið 2027.

Fyrir þann sem ætlar að byggja upp, endurnýja eða stækka hefðbundið upptökukerfi þýðir þetta eitt: reikningurinn hækkar, og hann heldur áfram að hækka.

Hybrid-lausn sem er hönnuð fyrir þennan veruleika

Hér skín Verkada. Í stað þess að reiða sig á miðlægan netþjón stútfullan af diskum geymir hver Verkada-myndavél efnið á innbyggðri SSD-geymslu, og skýið sér um stjórnun, afrit, aðgang og deilingu.

Þetta er hybrid-lausn í bestu merkingu orðsins: þú færð styrk skýsins án þess að þurfa að fjárfesta í dýru minni sem verður sífellt dýrara. Kostnaðurinn verður fyrirsjáanlegur, uppsetningin einföld og kerfið stækkar með þér, ein myndavél í einu, án þess að þú þurfir að kaupa næsta netþjón.

Í markaði þar sem minnið er orðið að munaðarvöru er þetta ekki bara þægilegt. Það er beinlínis skynsamlegt.

Kerfi sem stendur aldrei í stað

Það sem kemur mörgum á óvart við Verkada er hraðinn. Þetta er ekki kerfi sem þú kaupir og gleymir, heldur er þetta kerfi í stöðugri þróun. Nýir eiginleikar birtast reglulega í gegnum skýið, án þess að þú þurfir að skipta um vélbúnað eða kalla til tæknimann.

Sú öryggismyndavél sem þú kaupir í dag verður einfaldlega öflugri eftir hálft ár. Það er sjaldgæft loforð í heimi vélbúnaðar.

Gervigreindin í hjarta kerfisins

Það er einmitt gervigreindin sem knýr þessa þróun áfram. Hún er ekki lengur aukahlutur ofan á Verkada, heldur komin í sjálfan kjarna kerfisins.

Í dag getur kerfið greint fólk og farartæki, leitað eftir lýsingu (til dæmis „maður í rauðri úlpu“), lesið bílnúmer, fylgst með umferð og aðsókn og sent viðvaranir í rauntíma. Allt þetta gerist sjálfvirkt án þess að notandinn þurfi að grípa inn í og allt með persónuvernd í huga. Þetta er meðal annars gert með því að hylja andlit í rauntíma og með sérsniðnum persónuverndarsvæðum.

Hittu okkur á Haustráðstefnu Advania

Viltu sjá þetta með eigin augum? Á Haustráðstefnu Advania verðum við með bás þar sem þú getur prófað kerfið, séð gervigreindina í verki og rætt sérlausnir sem henta þínu fyrirtæki, hvort sem um er að ræða eina starfsstöð eða net útibúa um allt land.

Við bjóðum líka til hliðarviðburðar með Verkada: Andlit í móðu en ekki reglurnar.

10.9.2026 09:00:00

Compliance and Verkada: Blurring Faces, Not the Rules

Morgunmatur í boði. 45 mínútna kynning þar sem við förum yfir hvernig öflugt öryggi og ströng persónuvernd (GDPR) fara fullkomlega saman. Við sýnum lausnina í beinni, kynnum nýjustu eiginleikana og gefum innsýn í hvað er framundan hjá Verkada.

10.9.2026 14:00:00

AI Out of the Machine

Á stóra sviðinu heldur Jon Farkas, Field CTO hjá Verkada, erindið „AI Out of the Machine“:

Gervigreind er alls staðar núna, og þar með talið ringulreiðin í kringum hana. Ef við horfum framhjá tískuorðunum og flóðinu af „AI slop“ er ein spurning sem á skilið athygli.

Er þessi tækni raunverulega að skipta máli, eða bara að komast í fréttirnar?

Sjáumst í Hörpu

Skráðu þig á Haustráðstefnu Advania, tryggðu þér sæti á hliðarviðburðinum og fáðu morgunmat með okkur. Komdu við á básnum, prófaðu kerfið og sjáðu af hverju svo mörg íslensk fyrirtæki velja Verkada. Þessu viltu ekki missa af.

Við hlökkum til að hitta gestina á Haustráðstefnu Advania og sýna hvað Verkada hefur upp á að bjóða.

Fleiri fréttir

Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.