Öryggislausnir

Vertu í öruggum höndum. Advania býður upp á allar gerðir öryggislausna. Sérfræðingar okkar aðstoða vinnustaði við að fara yfir öryggismál þeirra.

Spjöllum saman
Vertu í öruggum höndum

Tölum saman um öryggismál

Marglaga auðkenningar
Marglaga auðkenningar auka öryggi til muna. Advania býður upp á margar gerðir lausna til auðkenninga.
Veikleikaskönnun
Advania býður lausnir sem framkvæma reglubundnar veikleikaskannanir á kerfum.
Netárásavarnir
Advania veitir einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum aðgang að vörn gegn netárásum eða DDoS árásum.
24/7 vöktun
Skjöldur sinnir eftirliti allan sólarhringinn. Jafnvel þegar netárásir eiga sér stað utan venjulegs skrifstofutíma.

Skjöldur

Öryggisþjónustan Skjöldur verndar fyrirtæki gegn ógnum í rauntíma allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Skjöldur er lausn sem er hönnuð til að skalast með fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Advania vaktar umhverfi þitt og býður upp á sólarhringsþjónustu með sérfræðinga í öryggislausnum sem bakland.

Skjöldur samþættist við þaulreyndar og viðurkenndar öryggislausnir frá Microsoft sem mörg fyrirtæki hafa þegar fjárfest í, en eru ekki að nýta sér til fulls.

Advania sér um uppsetningu og rekstur öryggislausnar að öllu leiti. Láttu Skjöld losa þig við áhyggjur og stress frá skaðlegum öryggisatvikum.

Sjáðu Skjöld nánar
Gerum þetta saman

Hvað þarf að hafa í huga?

Notendaþjálfun í öryggi

Advania Vitund er safn af stuttum netöryggisnámskeiðum sem eru ekki bara mikilvæg, heldur líka þrælskemmtileg. Námskeiðin snúa að ýmsum mikilvægum atriðum sem tengjast netöryggi.

Sjá nánar

Veföryggi

Það getur haft afdrifaríkar afleiðingar að smella óvart á sýktan hlekk eða vefslóð. Afleiðingarnar geta verið vírussmit, tap á viðkvæmum gögnum eða að verða partur af botneti. Sífellt algengara er að lögmæt vefsvæði hýsi óværur án þess að vita af því.

Póstvarnir

Ransomware-árásir verða sífellt algengari. Þegar óprúttnir aðilar komast yfir aðgang að gögnunum þínum, nota þeir tækifærið til að dulkóða gögnin og krefjast svo lausnargjalds til að aflétta dulkóðuninni. Tölvupóstar eru gjarnan leiðir slíkra árása. Því er mjög brýnt að vera með sérstakar tölvupóstvarnir.

Netöryggi

Advania býður upp á fjölbreyttar netöryggislausnir í samstarfi við stóran hóp fyrirtækja sem eru leiðandi á sviði netöryggismála. Hjá okkur færðu hugbúnað og vélbúnað sem gerir þér kleift að halda utan um umferð og stjórna aðgengi á þínum vefum. Hvort sem málið varðar eldveggi, innbrotsvarnir eða DDoS-varnir, þá erum við með lausnirnar
.

Marglaga auðkenningar

Með sífjölgandi vefþjónustum og kerfum sem fólk notar daglega, reynist fólki erfiðara að halda utanum öll lykilorðin. Hætta er á að sama lykilorð sé notað í öll kerfi. Leki eða tölvuárás á einn þjónustuaðila getur því leitt af sér að óprúttnir aðilar komist yfir aðgangsorð að fleiri þjónustum. Einfalt er að auka öryggi til muna með marglaga auðkenningum. Advania býður fjölda öruggra auðkenningalausna.

Viltu bæta öryggi á þínum vinnustað?

Mikilvægt er að stjórnendur og þau sem taka ákvarðanir á vinnustöðum, séu vel upplýst um forvarnir og viðbrögð við ógnum sem steðja að vinnustöðum þeirra. Sérfræðingar okkar í öryggismálum eru til þjónustu reiðubúin að fara yfir þín öryggismál.

Spjöllum saman

Notendaþjálfun í öryggi

Advania Vitund er safn af stuttum netöryggisnámskeiðum sem eru ekki bara mikilvæg, heldur einnig þrælskemmtileg. Námskeiðin snúa að mikilvægum atriðum um netöryggi. Hvernig bera eigi kennsl á líklega vefveiðipósta sem gætu leitt til gagnagíslingar eða pósta með fyrirmælasvikum um millifærslur á ranga aðila. Fræðslan tekur meðal annars á umgengni gagna, helstu hættum í aðgengi að vinnustöðum og öruggu neti.

Hvert myndband er einungis um ein mínúta að lengd. Það er sent sjálfkrafa á notendur í gegnum þjálfunarkerfið. Með einum músasmelli má horfa á myndbandið í tölvupóstinum.

Hafa samband við ráðgjafa

DDoS árásarvarnir

Tilgangur DDoS-árása (e. Distributed Denial of Service) er að valda truflun á þjónustu. Til dæmis að taka niður starfsemi þess sem ráðist er á eða að beina athygli frá tilraunum til innbrota. Við slíkar árásir eru netkerfi og -þjónar yfirkeyrð af álagi frá árásaraðila. Stutt DDoS-árás getur skapað meiri netumferð en eðlileg notkun skapar á heilu ári. Slíkum árásum getur fylgt mikill kostnaður. Ekki síst vegna mögulegrar skerðingar á starfsemi þess sem verður fyrir árásinni.

Advania veitir einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum aðgang að vörn gegn DDoS-árásum. Vörnin fer sjálfkrafa í gang um leið og árás hefst. Hún sendir tilkynningar með tölvupósti til allra sem þurfa að vita af árásinni.

Veikleikaskönnun Security Operations

Meirihluti innbrota í fyrirtæki eru vegna öryggisgalla í hugbúnaði, ýmist frá þekktum alþjóðlegum framleiðendum eða sérsmíðuðum lausnum.

Að vita hvað þarf að plástra getur verið tímafrekt verkefni án réttra tóla. Í tilfellum þar sem mikið er um veikleika, getur skipt sköpum að byrja á réttum plástrunum.

Advania býður lausnir sem framkvæma reglulegar veikleikaskannanir á kerfunum. Niðurstöður eru dregnar saman í öryggisskýrslum og flokkaðar eftir mikilvægi.

Útstöðvaöryggi Endpoint Security

Á meðan óprúttnir aðilar geta haft mikinn fjárhagslegan ávinning í því að valda fyrirtækjum skaða, er gríðarlega mikilvægt að huga að öryggi útstöðva. Til þess að tryggja að notendur falli ekki í gildrur óprúttinna aðila í gegnum tölvupósta eða sýktar vefsíður, er mikilvægt að halda útstöðvum vel uppfærðum með nýjustu viðbótum. Nauðsynlegt er að viðhalda öryggis- og vírusvörnum og stillingum þeirra í takt við nýjar uppfærslur.

Advania getur hjálpað til við að treysta útstöðvar með öryggislausnum og vírusvörnum. Þannig er dregið verulega úr hættunni á að þær verði nýttar sem inngangur í kerfin þín.

Greinar um öryggi

Sem netöryggisráðgjafi rekst ég oft á fyrirtæki sem treysta á Linux netþjóna til að keyra mikilvæg kerfi og forrit, en á sama tíma eru þau ekki fullviss um öryggi og stöðugleika þeirra. Hver kannast ekki við Linux þjóna sem hafa verið keyrandi í mörg hundruð daga án þess að vera endurræstur? Það má ekki endurræsa því þetta einfaldlega virkar og þekkingin til að bilanagreina ef eitthvað bilar er ekki til staðar. Þá er gott að spyrja sig, hver er raunveruleg staða öryggis, uppfærslna og viðhalds á þínum Linux netþjónum?
Töluverð umræða skapaðist um öryggi gagna eftir fjölmiðlaumfjöllun um sæstreng sem slitnaði á milli Svíþjóðar og Litháen og skemmdir á öðrum sæstreng, á milli Finnlands og Þýskalands. Hafsteinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna Advania ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Í síðustu viku hélt Advania morgunverðarfund þar sem Verkada kynnti öryggislausn sína. Það var frábær mæting og þéttsetinn salur enda spennandi dagskrá.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um öryggismál? Sendu okkur fyrirspurn.