Blogg - 17. febrúar 2026

Morgunverðarfundur Verkada – einfaldleiki, öryggi og samræmd stýring í fyrirrúmi

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Advania hélt vel sóttan morgunverðarfund þar sem við kynntum nýjustu lausnir Verkada á sviði öryggis- og aðgangsstýringar. Áherslan að þessu sinni var sérstaklega lögð á aðgangsstýringu, samþættingu hennar við aðrar vörur Verkada og þann ávinning sem fyrirtæki fá þegar öll öryggistækni er komin inn í eitt, heilstætt og skýjabundið umhverfi.

Mikil þátttaka og búnaður á staðnum

Fundurinn var afar vel sóttur og greinilegt að áhugi íslenskra fyrirtækja á einföldum, skýjabundnum og notendavænum öryggislausnum heldur áfram að aukast. Á staðnum sýndum við meðal annars:

  • Aðgangsstýringarborð og lesara
  • Myndavélar af nýjustu gerð
  • Dyrasíma
  • Gestamóttökukerfi
  • Umhverfisskynjara og raungögnum tengda þeim

Fundargestir gátu prófað búnaðinn, séð rauntímaupplifunina og fengið tilfinningu fyrir hversu vel allar lausnirnar spila saman.

Það vantaði ekki græjurnar á fundinn

Það vantaði ekki græjurnar á fundinn

Styrkleikar Verkada – eitt kerfi, mörg tól, engin flækja

1. Myndavélar og aðgangsstýring í sama kerfi

Einn helsti styrkleiki Verkada er að allar lausnir kerfisins eru hluti af einni og sömu heild. Þegar aðgangsstýring og myndavélar eru samræmdar í einu viðmóti verða öryggis- og rekstrarferli bæði einfaldari og skilvirkari. Með þessari samþættingu geta fyrirtæki fylgst með aðgangsatvikum ásamt samsvarandi myndefni, flýtt greiningu og viðbragði við mögulegum öryggisatvikum og minnkað rekstrarálag með færri kerfum og minna viðhaldi.

2. Tenging við AD – einfaldari rekstur og sjálfvirkni

Með samþættingu Verkada við Active Directory geta fyrirtæki:

  • Sjálfvirknivætt aðgangsréttindi starfsmanna
  • Lækkað villuhættu og haft fulla stjórn á hver fær aðgang hvar
  • Tryggt öruggt onboarding og offboarding
  • Minnkað álag á þjónustuborð og rekstrarteymi

Þessar tengingar skapa samræmi og öryggi, sérstaklega hjá stærri fyrirtækjum eða stofnunum með mikla starfsmannaveltu.

3. Dyrasímar – snjall og tengdur móttöku

Verkada Intercom gerir dyrastýringu bæði snjalla og örugga. Fyrirtæki geta:

  • Skoðað mynd í hárri upplausn áður en þau svara
  • Opnað dyr beint úr vafra eða appi
  • Sameinað dyrasímann við aðgangsstýringuna
  • Séð sögu gesta í samhengi við myndefni úr öðrum myndavélum

Þetta veitir bæði betra yfirlit og hraðari afgreiðslu gesta.

4. Gestamóttökukerfi – forskráning, verktakar og betri samskipti

Nýja gestamóttökukerfið frá Verkada er orðið mjög vinsælt hjá fyrirtækjum. Enda einfaldar það móttöku gesta og skipulag, ásamt því að koma á öruggari ferlum fyrir verktaka og tímabundna aðila.

Gestir geta fengið boð eða forskráningarhlekk áður en þeir mæta, sem gerir þeim kleift að:

  • Skrá sig fyrirfram
  • Fá upplýsingar um staðsetningu, bílastæði og aðgengi
  • Búa til QR-kóða sem gildir sem aðgangsréttur þegar þeir mæta

Þetta styttir biðtíma, minnkar álag á móttöku og tryggir faglegri og hnökralausari gestaupplifun.

Fullkomin tenging við aðgangsstýringu – sérstaklega gagnlegt fyrir verktaka

  • Verktakar geta fengið tímabundin aðgangsréttindi beint í gegnum forskráningu
  • Aðgangur virkjast sjálfkrafa þegar gestakomutími hefst
  • Aðgangur dettur út þegar heimsókn lýkur eða verkefni er lokið
  • Auðvelt er að rekja hvaða verktaki var hvar og hvenær

Fyrirtæki fá þar með öruggan, rekjanlegan og sjálfvirkan feril án þess að þurfa að úthluta sérlykjum eða fylgjast handvirkt með tímabundnum aðgangi.

5. Umhverfisskynjarar — betri yfirsýn yfir umhverfi og áhættu

Umhverfisskynjarar Verkada stuðla að betri stjórnun á byggingum með því að mæla loftgæði og hitastig, hljóðstyrk og frávik, hreyfingu, gufu, reyk og fleiri umhverfisbreytingar. Þetta gefur fyrirtækjum betri yfirsýn og möguleika á snörum viðbrögðum.

Takk fyrir frábæran fund — hafðu samband ef þú vilt vita meira

Við viljum þakka öllum sem mættu í morgun og tóku virkan þátt. Það er alltaf ánægjulegt að deila tækni sem gerir rekstur einfaldari, öruggari og gagnsærri.

Ef þú vilt skoða Verkada lausnirnar nánar, bóka kynningu eða fá ráðgjöf: 
hafðu endilega samband — við hjálpum þér að finna réttu lausnina fyrir þitt umhverfi.

Fleiri fréttir

Fréttir
13.11.2026
Sigurður Gunnar Gissurarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Viðskiptalausna Advania.
Fréttir
13.11.2026
Microsoft hefur tilkynnt um umfangsmikið rekstraratvik í Microsoft 365-þjónustum sínum sem hefur áhrif á notendur víða um heim. Truflunin hefur meðal annars áhrif á Microsoft Outlook og Exchange Online, en einnig geta komið upp vandamál við notkun á öðrum þjónustum Microsoft, svo sem Teams, SharePoint og Microsoft 365 Copilot.
Blogg
12.11.2026
Árásaraðili var fjóra daga frá tilkynningu PaperCut um veikleika að fyrsta innbroti. Dæmigert fyrirtæki er 43 daga að loka veikleika sem þegar er verið að nýta í árásum. Það bil verður ekki brúað með handavinnu.
Fréttir
09.11.2026
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).
Fréttir
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.