VinnuStund

VinnuStund er leiðandi vaktaáætlana- og viðverukerfi fyrir stærri vinnustaði. VinnuStund er sérlega gagnleg þeim með flókin vaktarkerfi, víðfeðma kjarasamninga og breytilegt umhverfi. VinnuStund getur tengst öllum helstu launakerfum.

Spjöllum saman
vinnustund heldur utan um tímana

Allar tímaskráningar á einum stað

Starfsfólk með góða yfirsýn
Skýr yfirsýn yfir vinnuskyldu og vaktir starfsfólks. Hægt að stimpla sig inn og út í símanum. Á sjálfsþjónustuvef má sjá vaktaóskir, útreikninga á leyfum, frídaga og fjarvistir.
Stjórnendur með heildarmynd
Stjórnendur sjá tímaskráningar og vinnutíma starfsfólks, geta haldið utanum vaktir og mönnun, og samþykkt óskir um vaktir og frí. VinnuStund gefur góðar skýrslur, tölfræði og yfirlit yfir réttindi starfsfólks.
Sjálfvirk samskipti við launakerfi
Öflugt tól fyrir launafulltrúa. Í VinnuStund er þægilegt að halda utan um stýringar fyrirtækis og starfsfólks. Heildarmynd af réttindum, réttindaávinnslu og alla helstu tölfræði.

SmáStund

Starfsmannaappið SmáStund er hluti af VinnuStund, en þar getur starfsfólk séð vinnutíma sinn og gert tímaskráningar.

Sjáðu SmáStund

Vinnustund

Heldur utan um og reiknar forsendur launa út frá vinnutíma starfsfólks, stimplunum og tíma- og fjarvistaskráningum. Kerfið heldur utan um réttindaávinnslu starfsfólks; orlof, frí vegna hvíldartímabrota, veikindi og yfirvinnufrí.

Öflugt tæki til að skipuleggja vinnu, hvort sem er sjálfvirkt út frá mönnunarþörf byggðri á hæfni starfsfólks og vaktaóskum þeirra, eða skilgreindu vaktamynstri. Í kerfinu er skýrslukerfi þar sem starfsfólk og stjórnendur fá yfirsýn yfir ýmis atriði sem snýr að vinnutíma og viðveru starfsfólks.

Í Vinnustund er öflug regluvél þar sem samningar eru skilgreindir. Kerfið styður nú þegar alla kjarasamninga ríkis og sveitarfélaga, s.s. samninga lækna, hjúkrunarfræðinga, kennara og fl.

Viltu vita meira?

Spjöllum saman

Viltu vita meira um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn.