Blogg - DD.10.YYYY

Bestu vinir bókarans

Þegar öllu er á botninn hvolft er einn mikilvægasti þáttur í rekstri fyrirtækja að tryggja tekjuflæði og rétt uppgjör á bókhaldi.

Þegar öllu er á botninn hvolft er einn mikilvægasti þáttur í rekstri fyrirtækja að tryggja tekjuflæði og rétt uppgjör á bókhaldi. Stöðlun samskipta milli bókhaldskerfis og banka með svokallaðri sambankalausn og notkun rafrænna reikninga auðveldar þessi brýnu verkefni og má með sanni segja að þessar nýjungar séu bestu vinir bókarans. 

Sambankalausn tryggir einföld samskipti við bankakerfið 

Með sambankalausninni er hægt að nota eina hugbúnaðareiningu til að eiga samskipti við allar helstu bankastofnanir landsins. Þetta þýðir á mannamáli að auðvelt er að stofna kröfu vegna reiknings því um leið og reikningur er stofnaður stofnast krafan í bankakerfinu. Þegar krafa er greidd fer sjálfvirkur innlestur á henni inn í bókhald og reikningur er merktur í bókhaldinu sem greiddur. Jafnframt má nota sambankalausn til að lesa inn bankayfirlit. 

 

Virkni innheimtukerfis:

  • Kröfur myndaðar við bókun sölu-, texta-, eða verkreiknings
  • Markmiðið er að bæta reikningagerð og innheimtu greiðslna
  • Innheimtukerfið tengist öllum helstu bankastofnunum landsins og færir starfsemina nær notandanum.
Mörg fyrirtæki vilja geta sent ógreiddar kröfur í milliinnheimtu. Við hjá Advania bjóðum því samhæfða lausn í okkar bókhaldskerfum sem innifelur eftirfarandi þætti:
  • Sambankalausn - innheimtuþjónusta
  • Birtingakerfi bankanna
  • Samskipti við helstu milliinnheimtuþjónustur á Íslandi með vefþjónustu
Í sambankalausninni fyrir innheimtuþjónustu bankanna er hægt að senda kröfur, móttaka svör og lesa inn greiðslur. Lausnin krefst uppsetningar á rafrænum skilríkjum:
  • Starfsskilríki – fullgild skilríki með örgjörvalesara
  • Búnaðarskilríki – bein samskipti við banka
Ávinningur af Sambankalausn 
  • Meðhöndlun textaskrár er úr sögunni
  • Tekur skemmri tíma
  • Aukið öryggi

Birtingarkerfi bankanna

Þegar fyrirtæki nota  þessa lausn geta viðtakendur reikninga séð rafræn skjöl eins og til dæmis reikninga og greiðsluseðla. Þá  höfum við hannað stílsnið fyrir bæði reikninga og greiðsluseðla, en dæmi um slíkt má sjá hér fyrir neðan. 

 

Milliinnheimtutenging með vefþjónustu

Með vefþjónustu má senda kröfur í vanskilum til milliinnheimtu. Fyrirtækið fær eftirfarandi upplýsingar um stöðu hvenær sem þörf gerist: 

  • Höfuðstóll kröfu
  • Innborgun
  • Áfallinn kostnaður málsaðila 
  • Aðgerðir sem hafa verið framkvæmdar
  • Hægt að senda fresta, breyta, afturkalla og fleira
Ávinnningurinn af þessu fyrirkomulagi er sá að öll mál eru ávallt með uppfærðri stöðu í bókhaldskerfinu sem auðveldar eftirlit og ákvörðunartöku. 

Rafrænir reikningar

  • Móttaka rafrænna reikninga
  • Sending rafrænna reikninga
Mikið hagræði felst í notkun rafrænna reikninga og kjörið er að nýta sér þá með þeim rafrænu lausnum sem þegar hefur verið fjallað um. Auðvelt er að nýta þá með þeim bókhaldskerfum sem við hjá Advania bjóðum.  Þarna er innbyggð lausn í nýrri útgáfum en í eldri útgáfum er það ytri lausn.
Smærri aðilar sem vilja ekki fjárfesta í stuðningi við rafræna reikninga í sínu bókhaldskerfi geta nýtt lausnir eins og  Skúffuna til að senda og móttaka rafræna reikninga handvirkt. Nánari upplýsingar og aðstoð færðu hjá okkur - ekki hika við að hafa samband!


Tengt efni
Olga Helena flutti kynningu um þetta málefni á morgunverðarfundi um Microsoft Dynamics AX viðskiptalausnina á dögunum.

 



Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.