Fréttir - 13. ágúst 2020

Rafræn skil til Þjóðskjalasafns

Eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns leiddi í ljós að skjalastjórn hjá opinberum stofunum sé stórlega ábótavant. Tilvalið er að nota Office 365 til rafrænna skila á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands.

Eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns leiddi í ljós að skjalastjórn hjá opinberum stofunum sé stórlega ábótavant. Tilvalið er að nota Office 365 til rafrænna skila á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands. 

Opinberum aðilum ber lagaleg skylda til að halda utan um sín gögn með ábyrgum hætti og skila gögnum til vörsluaðila. Þjóðskjalasafn Íslands hefur hins vegar aðeins fengið gögn úr 3% af rafrænum gagnakerfum ríkisins. Samkvæmt eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns frá því í febrúar 2020, kemur fram að meðferð á tölvupóstum sé sérstaklega ábótavant.

Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður telur nauðsynlegt að ráðast í gríðarlegt átak í langtímavörslu rafrænna skjala. Skjöl séu í raun minni samfélagsins og opinberiri aðilar beri ábyrgð á því að þau varðveitist.
Nú þegar flestar opinberar stofnanir eru að taka í notkun Office 365 umhverfið er tilvalið að nýta tækifærið til að koma gagnavörslu í gott horf. Sérfræðingar Advania hafa aðstoðað viðskiptavini við að koma upp skjalakerfum í 365 sem uppfylla kröfur um gagnaskil.

Advania efnir því til opins fræðslufundar um hvernig standa megi að rafrænum skilum á gögnum til Þjóðskjalasafns íslands.
Á fundinum, sem streymt verður á Youtube, segir Gunnar Örn Haraldsson sérfræðingur Advania frá því hvernig nýta megi Office 365 umhverfið til að koma rafænni skjölun í gott horf og skila á gögnum til Þjóðskjalasafns. 

Sérfræðingar Þjóðskjalasafns, þau S. Andrea Ásgeirsdóttir og Garðar Kristinsson, segja frá kröfum og reglum um gagnaskil og rafræna skjalavörslu.
Þeir sem vilja kynna sér málið geta skráð sig á fundinn og fá senda slóð til að fylgjast með.


Fleiri fréttir

Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.