Nýjasta nýtt - 19.03.2012

Fundur um framtíð flýtibíla

Advania tekur þátt í að setja á laggirnar nýtt samgöngukerfi.

Fundur um framtíð flýtibíla á Íslandi verður haldinn í Tjarnarbíói þriðjudaginn 20. mars kl. 15 - 16.30. Fjallað verður um samgöngur, kostnað við að eiga bíl og hugmyndir um innleiðingu á flýtibílum á Íslandi. Markmiðið er að setja á laggirnar nýtt samgöngukerfi og auka þannig valkosti í samgöngum. Fundurinn er öllum opinn án endurgjalds. 

HVAÐ ERU FLÝTIBÍLAR?
Þjónusta með flýtibíla er að finna víða erlendis og felst í því að hægt sé að leigja bíla til lengri eða skemmri tíma. 

HVERJIR STANDA FYRIR FUNDINUM
Aðstandendur verkefnisins eru fyrirtæki sem hafa áhuga á að koma á laggirnar flýtibílaþjónustu á Íslandi, til að geta nýtt hvort heldur sem er í eigin rekstri eða fyrir starfsmenn utan vinnutíma. Að fundinum standa Landsbankinn ásamt fyrirtækjunum Advania, Alcoa, Fjarðaál, Íslensk nýorka, Landspítalanum, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg. 

DAGSKRÁ 
  • Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB -Kostnaður við að eiga bíl á Íslandi.
  • Kristín Soffía Jónsdóttir,varaformaður Umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar - Samgöngur í Reykjavík.
  • Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum - Er framtíð í flýtibílum?
  • Pallborðsumræður. Auk fyrirlesara munu Ástgeir Þorsteinsson frá Frama, Sigrún Helga Lund og Einar Kristjánsson hjá Strætó taka þátt í pallborðsumræðunu. 
Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Borgarritari Reykjavíkurborg, er fundarstjóri og stjórnandi pallborðsumræðna. 

Fleiri fréttir

Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.