Nýjasta nýtt - 10.11.2011

Gott 9 mánaða uppgjör hjá Skýrr

10% tekjuvöxtur milli ára og 9% EBITDA-vöxtur

Velta Skýrr-samstæðunnar var liðlega 17,5 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2011. Velta samstæðunnar á sama tímabili á árinu 2010 nam 15,9 millljörðum og er því tekjuvöxtur tæplega 10% á milli ára. Horfur fyrir árið 2011 gera ráð fyrir veltu upp á 24,2 milljarða króna og að EBITDA framlegð verði um 1,1 milljarðar króna, sem er um 40% hækkun milli ára.

„Við erum mjög ánægð með þann rekstrarárangur sem liggur núna fyrir og niðurstaðan er í meginatriðum í samræmi við áætlun. Við erum að auka EBITDA-framlegð um rétt tæplega 9% milli ára. EBITDA af reglubundnum rekstri var 839 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2011, samanborið við 770 milljónir á sama tímabili í fyrra,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.

Heildarhagnaður Skýrr

Heildarhagnaður Skýrr á fyrstu níu mánuðum ársins 2011 var 57 milljónir króna. Þessi afkoma er lítillega undir áætlun og stafar það einkum af sveiflum í gengi íslensku krónunnar á árinu og tilfallandi kostnaði við yfirstandandi endurskipulagningu hjá dótturfyrirtæki Skýrr í Noregi. Þess má geta að á þriðja árshluta var EBITDA-framlegð 337 milljónir króna, en velta tímabilsins nam 5,3 milljörðum. EBITDA-hlutfall Skýrr á þriðja árshluta 2011 var því 6,3%. Eigið fé Skýrr í lok september 2011 nam 3.398 milljónum króna.

Norrænt upplýsingafyrirtæki

„Fyrirtækið hefur tekið miklum breytingum undanfarin misseri. Skýrr er þannig í dag norrænt upplýsingatæknifyrirtæki með 1.100 starfsmenn í fjórum löndum. Við vinnum hörðum höndum að samþættingu samstæðunnar í eina heild og það verkefni gengur framar vonum. Erum meðal annars að styrkja grunnviði og skipulag samstæðunnar, létta samhliða á yfirbyggingu og efla nokkur lykilverkefni miðlægt – meðal annars á sviði viðskiptahugbúnaðar. Jákvæð afkoma okkar í níu mánaða uppgjöri, þrátt fyrir nokkuð erfitt árferði, sýnir að við erum á réttri leið,“ bætir Gestur við.

Stjórn Skýrr

Stjórn Skýrr skipa þau Anna Rún Ingvarsdóttir, Einar Páll Tamimi, Erna Eiríksdóttir, Finnbogi Jónsson, Gísli Hjálmtýsson, Þorsteinn G. Gunnarsson (formaður) og Þór Hauksson. Aðaleigandi Skýrr er Framtakssjóður Íslands, auk rúmlega 40 annarra hluthafa.

  

Fleiri fréttir

Blogg
17.11.2025
Í gegnum árin hefur samstarf Advania og Yealink byggst á trausti, nýsköpun og sameiginlegri sýn um að veita viðskiptavinum bestu mögulegu lausnir í fundar- og samskiptatækni. Langur listi ánægðra viðskiptavina er vitnisburður um gæði lausnanna og þjónustunnar sem fylgir.
Blogg
13.11.2025
Dell hefur kynnt nýjar fartölvulínur sem eru hannaðar til að mæta ólíkum þörfum á vinnustöðum. Til að einfalda valið eru þrír meginflokkar: Dell Pro, Dell Pro Premium og Dell Pro Max. Hver lína er sérsniðin að mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, og hjálpar starfsfólkinu að vera Pro í sinni vinnu.
Fréttir
12.11.2025
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins á Íslandi árið 2025 (e. Partner of the Year). Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.