Blogg - DD.04.YYYY

Gott aðgengi er góður bissness

Gott aðgengi getur opnað fyrirtækjum aðgang að risavöxnum markaði sem fáir sinna.

Í síðasta bloggi um aðgengismál fjallaði ég um mikilvægi þess að aðgengi að rafrænum upplýsingum og tækni sé í lagi. Hér bendi ég á viðskiptalegar ástæður góðs aðgengis og þann risastóra markað sem gott aðgengi getur opnað fyrirtækjum.

Fyrst kemur gulrótin, svo prikið

Það mætti líta á þetta blogg sem gulrótina í seríunni. Næst kemur prikbloggið sem fjallar um samfélagslega ábyrgð og hvernig lágmarksaðgengi er lögbundið. Þar á eftir koma skemmtilegu bloggin um aðferðir, tækni og aðgengisprófanir, aðgengi er oft auðveldara en þið haldið. Hvað um það, ég er viss um að í þessu bloggi finna lesendur ástæðu til þess að hafa aðgengismálin hjá sér í topplagi, nema kannski þeir sem hafa engan áhuga á fleiri notendum, viðskiptavinum eða auknum tekjum. 



Aðgengi er ekki blótsyrði

Fram til síðustu aldamóta sáu menn fyrir sér að aðgengi fælist í því að sérhanna vefsíður fyrir blinda og sjónskerta notendur. Aðrir gætu skoðað síðurnar eins og þær kæmu af vefkúnni. Þessi skilningur fólks var ekki alls kostar rangur á þeim tíma en nú er öldin önnur, bókstaflega.

Með tilkomu staðla frá Worldwide Web Consortium (W3C) hefur tekist að skilgreina 
  • Hvernig vafrar túlka vefsíðukóða
  • Hvernig stoðtæknihugbúnaður sækir upplýsingar úr vefsíðutré 
  • Hvernig upplýsingunum er miðlað til notandans á þann hátt sem hentar best 

Þannig er auðvelt að hanna vefi á aðgengilegan hátt án þess að skilja nákvæmlega hvernig hali með höfuðmús, sprund með skjástækkunarforrit, nörd með Nokiasíma eða verðbréfamiðlari með 23 tommu skjá skoðar þá.

Einn helsti notendaviðmótssérfræðingur Breta, Leonie Wattson lýsir þessu vel þegar hún segir: “Aðgengi er ekki blótsyrði, heldur hluti af framúrskarandi notendaupplifun“

 

Flestir snjallsímanotendur eru með „aðstæðubundna fötlun“

Með tilkomu snjallsíma má segja að hlutfall notenda með "aðstæðubundna fötlun" hafi aukist í nær 100%. Notendur sem skoða vefi úr snjallsíma með litlum skjá með slæmri litaupplausn í lélegum birtuskilyrðum þurfa ekki að vera sjónskertir eða litblindir til þess að geta ekki lesið texta sem erfitt er að greina frá bakgrunni vegna slæmrar litamótstöðu. Hér má sjá nokkur dæmi um þetta.

Notendur sem skoða myndband á vef í miklum hávaða, t.d. á bar, í sturtu eða á leiðinlegri árshátíð (gerist aldrei hjá Advania) eru heyrnarskertir. Því er sniðugt að texta myndbönd sem sett eru á vefinn. 

Gerðu notendum lífið auðvelt

Notendur þurfa ekki að vera hreyfihamlaðir til þess að eiga í vandræðum með að smella á innsláttarsvæði á vefsíðu. Það er nóg að vera með lítinn snertiskjá, reyna að gera þrjá hluti í einu eða hafa fengið sér fullmikinn bjór til að eiga í vandræðum með það. Ef allir innsláttarreitir eru merktir með label tagi, sem tengt er við þá er fókus færður í reitinn þegar notandi smellir á textann í merkinu. Að hafa merkingar á öllum reitum og tengja þær við innsláttarsvæðin er ekki bara ávinningur fyrir hreyfihamlaða, heldur líka fyrir blinda eða sjónskerta notendur (textinn er sjálfkrafa lesinn þegar notandinn kemur í reitinn) og fólk sem er að fylla inn upplýsingar úr litlum snertiskjám. Þetta auðveldar notendum að sjá merkitextann og tilkynnir merkingu innsláttarreita sjálfkrafa fyrir notendur sem eru blindir og nota skjálestrarhugbúnað.
Ekki má aftra notanda með þrjá þumalfingur frá því að slá kortanúmerið sitt inn í vefpöntunina úr símanum, eða hvað? 

Þeir sem gæta þess að hjálpa notendum í gegnum kaup- og skráningarferli á vefsíðunum sínum geta hagnast verulega á því. 

 

Ekki fara í feluleik með vefinn þinn

Leitarvélar eru blindir og heyrnarlausir notendur sem nota ekki mús. Þær skilja ekki myndir eða margmiðlunarskrár, en nýta sér texta, titla, fyrirsagnir og margt annað til að greina síðurnar ykkar og beina fólki þangað sem virðast þurfa á þjónustu ykkar að halda. Það eru skýr tengsl milli vefaðgengis og leitarvélabestunar annars vegar og vefaðgengis og snjallsímabestunar hins vegar. Tilgangurinn með því að halda úti vefsíðu er jú að notandinn geti fundið ykkur á vefnum, skoðað hvað þið hafið upp á að bjóða og svo gert það sem hann vill við upplýsingarnar. Einfalt og kunnuglegt viðmót, skýr og einfaldur orðaforði og þægileg og notendavæn framsetning er hagur okkar allra.

Silfurlitaða flóðbylgjan skellur á netinu

Flóðbylgja eldri borgara skellur á netinu á hverjum degi, fyrirbæri sem á ensku kallast the „Silver Tsunami“. Um 40% Breta verður yfir fimmtugt árið 2020 og a.m.k. þrjár milljónir Breta á eftirlaunaaldri verði ekki bara í fullu fjöri heldur líka í fullri vinnu. 

Hækkandi aldri fylgja minniháttar kvillar. Sjón og heyrn skerðist og minnið stundum með, en lífsgleðin, þörfin á að taka þátt í samfélaginu, ferðast eða vafra um vefinn fer hvergi. Hækkandi meðalaldur og aukin tölvufærni eldra fólks þýðir að hér er um stóran og ört stækkandi hóp notenda og viðskiptavina að ræða. Engin furða að bandarískir markaðsfræðingar kalla þennan hóp „risann blundandi“ eða "the dosing giant."

Til að þjóna þessum hópi þarf að hafa skýrt og aðgengilegt viðmót.

Flott aðgengi fyrir fatlaða skilar sínu

En aðgengilegar vefsíður höfða ekki bara til fólks á efri árum. Tæknin er einmitt í síauknum mæli að auka atvinnuþátttöku, starfsgetu og tekjur fólks með fötlun burtséð frá aldri þess. Bandarískar rannsóknir sýna að nær 19% Bandaríkjamanna á við einhvers konar fötlun að stríða sem getur haft áhrif á hvort og hvernig það flækist um netheima. 

Hópurinn skiptist í fjóra flokka fötlunar.

•   8,2% notenda eiga við hreyfihömlun að stríða og eiga m.a. erfitt með aðnota mús
•   6,3% notenda eiga við andlega fötlun að stríða (athyglisbrest, lesblindu, o.fl.).
•   3,3% notenda eru fjarsýnir, nærsýnir, þröngsýnir eða svartsýnir, þ.e.a.s. fólk með blindu eða sjónskerðingu
•   3,1% notenda eru heyrnarskertir.

Eftir miklu er að slægjast

Um 35.000 Íslendingar eru eldri en 60 ára, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, 2010. Erfitt er að horfa framhjá stærð og tekjum þessa markhóps. Áætlað er að rúmlega milljarður manna eigi við einhvers konar fötlun að stríða og að tekjur hópsins nemi um fjórum trilljónum dollara á ári. Sem sagt, þessi markaður er á stærð við kínverska markaðinn, en hingað til hafa fyrirtæki verið feimin við að sækja inn á hann.

Rannsóknir sýna ávinning af góðu aðgengi

Rannsóknir benda til þess að það sé árangursríkt að bæta aðgengi að vefjum fyrirtækja og stofnana. Vefaðgengisumbætur getað skilað hagræðingu, tekjuaukningu, fleiri viðskiptavinum og betri upplifun notenda af vefsíðum. Frekari rannsókna er samt sem áður þörf á því hversu mikið bætt vefaðgengi skili sér beint í kassann hjá fyrirtækjum. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið benda þó til þess að fjárfesting í aðgengi skili sér margfalt til baka. Hér eru til staðar augljós sóknarfæri fyrir flesta aðila í íslenskri smásölu, netsölu og þjónustu, innanlands jafnt sem utan. 

Ekki er hægt að lofa gulli og grænum skógum ef aðgengið er í lagi, en það hlýtur að vera spennandi að átta sig á að allt að fimmtungur samfélagsins bíður spenntur eftir að komast inn í vefheiminn ykkar, svo ekki sé minnst á betri vef fyrir snjallsímanotendur, betra aðgengi leitarvéla og almennt betri upplifun fyrir alla ykkar notendur og viðskiptavini.

 

Fleiri fréttir

Blogg
21.12.2018
Á sólríkum degi í mars pakkaði starfsmaður Advania inn fartölvu í síðasta skiptið fyrir viðskiptavin verslunar Advania í Guðrúnartúni. Ákveðið hafði verið að endurnýja verslunarrýmið og flytja verslunina alfarið í stafræna heima.
Blogg
21.11.2018
Líkt og með fyrri útgáfur stefnir Microsoft áfram þann veg að skýjavæða Dynamics NAV enn frekar með aukinni samþættingu við aðrar skýjaþjónustur í vöruframboði sínu. Ávinningur af því að nýta aðrar Microsoft þjónustur með NAV hefur því stórlega aukist.
Blogg
13.11.2018
Hjá Advania höfum við mikinn metnað til þess að hlúa ríkulega að starfsfólkinu okkar. Við viljum raunar vera besti vinnustaður landsins og því er okkur mikilvægt að starfsfólkið okkar búi við góða vinnuaðstöðu, möguleika til þróunar, endurgjöf og hvatningu sem hjálpar þeim að vaxa í starfi.
Blogg
02.11.2018
Raad Bestouh ferðast á rafmagnshjóli til og frá vinnu og kemur við í æfingasal Advania eftir hjólatúrinn á morgnanna.
Blogg
29.10.2018
Fyrir fjórum árum ákvað Ragnar Páll Árnason að prófa að hjóla í vinnuna til að styrkja sig eftir hnémeiðsli. Hann nýtti samgöngustyrk frá Advania til að kaupa sér hjól og síðan var ekki aftur snúið.
Blogg, Nýjasta nýtt
27.09.2018
Íslensk fyrirtæki hafa ekki farið varhluta af þeirri þróun að viðskiptavinir gera stöðugt meiri kröfur til þjónustuupplifunar. Sé upplifuninni ábótavant eru viðskiptavinir oft fljótir að leita til samkeppnisaðila.
Microsoft, Blogg
29.08.2018
Ert þú að nýta alla möguleikana sem felast í O365 E3? Í E3 má finna ýmiskonar forrit sem geta stóraukið skilvirkni og auðveldað störf á vinnustaðnum.
Blogg
21.08.2018
Við hjá Advania erum stolt af dagskrá Haustráðstefnunnar í ár og hlökkum til að taka á móti fólki í Hörpu 21.september. Við höfum lagt okkur fram við að setja saman spennandi prógram sem tekur á áhugaverðum áskorunum í stafrænum heimi. Fyrirlesararnir koma úr ólíkum áttum tæknigeirans. Sumir eltast við hættulegustu ógnir internetsins. Aðrir nýta gervigreind til að smíða útlimi fyrir fólk eða ofurtölvur í brautryðjandi læknisfræðirannsóknum. Við vonumst til að gestir okkar verði innblásnir og ögn klókari eftir daginn.
Blogg
12.06.2018
Í umhverfi þar sem fólk reiðir sig í síauknum mæli á stafrænar lausnir við hversdagslegustu athafnir er eðlilegt að líta til stafrænna lausna í mannauðsmálum.
Blogg
24.05.2018
Á næstu fjórum árum verður jafnlaunavottun innleidd í skrefum á íslenskum vinnumarkaði. Hvað er jafnlaunavottun? Hvað þurfa rekstraraðilar fyrirtækja að gera til að mæta kröfunni um að standast jafnlaunavottun? Og hvenær taka lög um jafnlaunavottun raunverulega gildi? Hér er farið yfir helstu atriði sem varða jafnlaunavottun eins og málin horfa við fyrirtækjunum sem eiga að standa að innleiðingu.
Blogg
16.05.2018
Microsoft býður upp á leiðir til að vernda persónuupplýsingar og aðstoða við GDPR.
Blogg
15.05.2018
Sífellt fleiri stjórnendur í íslensku atvinnulífi átta sig á ávinningnum af því að leysa tímafrek og síendurtekin verkefni með sjálfvirkum leiðum. Mikil eftirspurn er eftir aðstoð við að sjálfvirknivæða reglulega ferla sem krefjast fyrirhafnar starfsfólks í viðskiptum- og þjónustu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.