Blogg - 24. maí 2018

Jafnlaunavottun - Hvað þýðir það fyrir þitt fyrirtæki?

Á næstu fjórum árum verður jafnlaunavottun innleidd í skrefum á íslenskum vinnumarkaði. Hvað er jafnlaunavottun? Hvað þurfa rekstraraðilar fyrirtækja að gera til að mæta kröfunni um að standast jafnlaunavottun? Og hvenær taka lög um jafnlaunavottun raunverulega gildi? Hér er farið yfir helstu atriði sem varða jafnlaunavottun eins og málin horfa við fyrirtækjunum sem eiga að standa að innleiðingu.

Í aðdraganda gildistöku laga um jafnlaunavottun er að ýmsum málum að huga. Vert er að skoða lögin sjálf, staðalinn sem þau byggja á og hvernig hægt er að mæta þeim kröfum sem stillt er upp.

 

Lög um jafnlaunavottun

Um mitt árið 2017 voru lög samþykkt á Alþingi sem stuðla að jöfnum rétti karla og kvenna á vinnumarkaði og vinna gegn kyndbundnum launamun. Í raun og veru má þó segja að lögin hafi töluvert breiðari skírskotun, en þau stuðla fyrst og fremst að jöfnum rétti einstaklinga óháð kyni, þjóðerni eða öðrum þáttum.

Saman dregið má segja að megininntak laganna sé eftirfarandi:

  • Lögin eiga við um fyrirtæki eða stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri.
  • Jafnlaunavottun skal endurnýja á þriggja ára fresti.
  • Skila þarf skýrslum um niðurstöður til Jafnréttisstofu.

 

Staðallinn

Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á staðlinum ÍST 85/2012 og er sá staðall aðgengilegur öllum á netinu en fyrir þá sem vilja er einnig hægt að kaupa hann á pappír.

Tilgangur staðalsins er að styðja atvinnurekendur í því að koma á og viðhalda launajafnrétti innan vinnustaðar.

Með innleiðingu á staðlinum er atvinnurekandi í raun að koma sér upp stjórnkerfi til að tryggja að ákvörðun launa sé málefnaleg og að rökstuðningur fylgi ákvörðunum.

 

Stjórnkerfið

Þegar talað er um stjórnkerfi í þessu samhengi er í raun átt við eftirfarandi:

  • Verklag sé skýrt við ákvörðun launa
  • Störf og einstaklingar séu metnir eftir viðeigandi þáttum
  • Skipulega sé fylgst með og haldið utan um laun starfsmanna, tryggja að brugðist sé við launamisræmi
  • Tekið sé á móti ábendingum
  • Úrbætur séu framkvæmdar með meðvituðum og rekjanlegum hætti

Það er ekki gefið að það sé auðvelt fyrir starfsfólk að byrja á þessu verkefni og auðveldlega geta vaknað spurningar um hvar rétt sé að byrja eða hvernig best sé að standa að málum. Hvernig er til dæmis best að halda utan um ábendingar? Hvar er eðlilegt að vista launagreininguna eða framkvæma starfaflokkun o.s.frv.

Til að varpa ljósi á hvað þetta felur allt saman í sér þá þarf t.d. að meta einstaklinga út frá hæfni og persónubundnum þáttum, það þarf að meta mikilvægi starfa, álag, vinnuaðstæður og margt margt fleira. Ólík störf geta einnig verið jafn mikilvæg og ber að greiða sömu laun fyrir þau þó svo þau séu óskyld, eins getur stéttarfélag starfsmanns haft áhrif á ákvörðun launa.

Reglulega þarf að vinna þessar greiningar og framkvæma úttektir til þess að öðlast „Jafnlaunavottun“ og viðhalda henni. Til þess þarf að vera hægt að sýna fram á hvernig þessi mál eru rekin og til þess þarf gott skipulag.

Augljóslega má gera ráð fyrir að utanumhald með þessum málum sé umfangsmeira hjá fjölmennari fyrirtækjum, en óháð stærð fyrirtækja eða starfsemi mætti segja að það sé hollt fyrir alla starfsemi að fara í gegnum þennan feril og innleiða stjórnkerfi sem tryggir jöfn laun starfsmanna.

Með reglulegu millibili þarf atvinnurekandi að fá óháðan vottunaraðila til þess að taka út stjórnkerfið veita eða endurnýja jafnlaunavottunina. En vottunaraðili má ekki vera sá hinn sami og framkvæmir úttektir.

 

Lausnir

Advania hefur í samstarfi við Avanti Ráðgjöf þróað lausn sem styður við innleiðingu og rekstur á „Jafnlaunastjórnkerfi“ sú lausn heitir easyEQUALPAY og inniheldur meðal annars tilbúin stefnuskjöl, verklagsreglur, sniðmát o.fl. sem fyrirtæki þurfa að eiga til hjá sér og vinna eftir. Einnig veitir lausnin skipulag og virkni til að framkvæma og fylgja eftir þeirri vinnu sem þarf að fara í s.s.

  • Vöktun
  • Innri og ytri úttektir
  • Rýni stjórnenda
  • Móttaka ábendinga
  • Frávikaskráning
  • Úrbótaverkefni
  • o.fl.

Með slíkri lausn verður mun einfaldara að fylgja regluverkinu auk þess að hafa góða yfirsýn og skýran ramma um þau verkefni sem þarf að vinna.

Nánari upplýsingar um easyEQUALPAY má finna á vöruvef Advania.

 

Mikilvægar tímasetningar

  • Fyrirtæki með 250 eða fleiri starfsmenn - Skulu öðlast vottun eigi síðar en 31.des 2019
  • Fyrirtæki með 150-249 starfsmenn - Skulu öðlast vottun eigi síðar en 31.des 2020
  • Fyrirtæki með 90-149 starfsmenn - Skulu öðlast vottun eigi síðar en 31.des 2021
  • Fyrirtæki með 25-89 starfsmenn - Skulu öðlast vottun eigi síðar en 31.des 2022

Rétt er að benda á að innleiðing á jafnlaunavottun sem stjórnkerfi getur tekið allt frá nokkrum vikum og upp í nokkra mánuði, að sjálfsögðu háð starfsemi og þeim stjórnarháttum sem fyrir eru eins og vinnuframlagi í verkefnið. Fyrir flest stærri fyrirtæki sem skulu öðlast vottun fyrir 31.des 2019 þýðir það að rétt er að hafa nokkuð hraðar hendur og stefna að því að koma þessu í framkvæmd fljótlega. Ekki er nóg að innleiða stjórnkerfið heldur þarf einnig að klára vottunina sjálfa.

 

Gagnlegir hlekkir

Endilega hafið samband við sérfræðinga okkar og við aðstoðum þig við að finna bestu leiðina að jafnlaunavottun.

Höfundur: 
Gunnar Örn Haraldsson, vörustjóri - Viðskiptalausnir

Fleiri fréttir

Blogg
10.05.2019
Hvað getur sagan kennt okkur um fjórðu iðnbyltinguna? Það skyldi þó aldrei vera að sagan endurtaki sig eða við gætum lært af henni? Að ný tækni taki ekki almennilega á sprett fyrr en hún hefur náð ákveðinni lágmarks viðspyrnu.
Blogg
09.05.2019
Notendur Windows 7, Office 2010, SQL 2008/R2 og Windows Server 2008/R2 þyrftu að gera ráðstafanir í tengslum við að Microsoft hættir stuðningi við þessar útgáfur á næstunni.
Blogg
06.05.2019
Ef vinur þinn segir þér að þú hafir sent undarlegan tölvupóst eða sett skrýtin innlegg á samfélagsmiðla sem þú ert ekki líklegur að gera, þá ættu viðvörunarbjöllur að hringja Líklegast hefur einhver komist inn á reikninginn þinn án þess að þú tækir eftir því.
Blogg
30.04.2019
Rafrænt kosningakerfi sem þróað er af Advania, er vel í stakk búið til að annast þjóðaratkvæðagreiðslu. Kerfið nýttist vel í kosningum um Lífskjarasamningana og sparaði stéttarfélögum landsins tugi milljóna.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar kemur að útvistun á tölvuumhverfi er mikilvægt að velja öflugan og áreiðanlegan þjónustuaðila. Með rekstrarþjónustu Advania sjá sérfræðingar okkar um daglegan rekstur upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar tengingin skiptir öllu máli, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar þú ert með mikilvæga bókun, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Advania er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands. Advania vill auðvelda úrlausn á þeim fjölmörgu flóknu tæknimálum sem Knattspyrnusambandið stendur frammi fyrir og gera því kleift að einbeita sér að sínu sérsviði, fótbolta.
Myndbönd
04.04.2019
Hér má heyra hvernig Friðrik Heiðar Blöndal upplýsingatæknitækistjóri Ölgerðarinnar hefur upplifað alrekstrarþjónustu Advania.
Myndbönd, Nýjasta nýtt
04.04.2019
Nú er sjálfsafgreiðsla valkostur í öllum stærstu matvörukeðjum landsins. Við spurðum neytendur hvernig þeim líkar sjálfsafgreiðslan og þetta eru svörin sem við fengum.
Myndbönd
04.04.2019
50skills er nú hluti af mannauðslausnamengi Advania. Svona lýsa notendur upplifun sinni af mannauðslausninni 50skills.
Blogg
04.04.2019
Viðskiptavinamiðuð stefna er eitt heitasta slagorðið í viðskiptaheiminum í dag. Hvers vegna ættu fyrirtæki að tileikna sér slíka stefnu?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.