Blogg - DD.04.YYYY

Með rafrænni staðfestingu er lokaáfangi að rafrænum viðskiptum í höfn

Rafræn staðfesting á vöruafhendingu gerir fyrirtækjum kleift að staðfesta hvenær vara var afhent og hver tók á...

Rafrænir reikningar eru komnir í nokkuð almenna notkun hjá fyrirtækjum og stofnunum og notkun rafrænna pantana og vörulista eykst stöðugt. Staðfesting á móttöku á afhendingaseðli er í vaxandi mæli það eina í viðskiptum sem ekki er rafrænt. Þetta hefur hindrað fyrirtæki í því að njóta ávinnings af rafrænum viðskiptum til fulls. Við hjá Advania höfum brugðist við þessu með því að þróa veflausn fyrir rafræna staðfestingu á vörumóttöku. Lausnin parar sig á móti Android tækjum og mögulegt er að tengja hana við hvaða viðskipta- og bókhaldskerfi sem er fyrir sjálfvirka skráningu á afhendingarseðlum. Fyrirtæki geta klæðskerasaumað vöruafhendingalausnina að sínum þörfum auk þess sem hún nýtist jafnt stórum sem smáum fyrirtækjum. 

Margþættur ávinningur af rafvæðingu afhendingaseðla
Rafræn staðfesting á vöruafhendingu er ekki bara vistvænni kostur en notkun pappírseyðublaða heldur felast margir kostir í innleiðingunni er gera fyrirtækjum mögulegt að staðfesta og sanna hvenær vara var afhent og hver tók á móti viðkomandi sendingu.

Meðal ávinninga má nefna: 

  • Dregur úr kostnaði við pappír, skjölun og geymslu. 
  • Flýtir fyrir afgreiðslu á reikningum.
  • Móttakandi getur yfirfarið upplýsingar er tengjast sendingu og kvittað fyrir móttöku á snertiskjá - s.s. snjallsíma eða spjaldtölvu – undirskrift birtist svo á rafrænu eintaki afhendingaseðils.
  • Rafrænt eintak (pdf) af afhendingaseðlum og eyðublöðum geta skilað sér í sjálfvirkum tilkynningum.
  • Notendur geta nálgast upplýsingar um vöruafhendingu á vefnum í vafra.
  • Auðveldar yfirferð á afköstum dagsins og afstemmingar. 
  • Sjálfsafgreiðsla á Netinu þýðir betri þjónustu fyrir kaupendur vöru. 
  • Söluaðili þarf að sinna færri fyrirspurnum um vöruafhendingu. 
  • Villum sem tengjast rangri skráningu fækkar stórlega.
  • Rekjanleiki í síðustu skrefum aðfangakeðjunar batnar mjög. 
  • Dregur verulega úr afskriftum vegna sendinga sem glatast.
  • Það sem er skráð rafrænt má auðveldlega greina en með greiningu á ferli og afgreiðslu má finna leiðir til að bæta þjónustu enn frekar.

Advania veitir viðskiptavinum sínum fjölþætta ráðgjöf við innleiðingu og hagnýtingu rafrænna viðskipta og lausna fyrir snjalltæki . Vertu í sambandi ef þú vilt fá nánari upplýsingar um hvernig nýta má þessa þætti til að ná betri árangri í þínum rekstri.


Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.