Morgunverðarfundur 15. apríl um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta
Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta, fimmtudaginn 15. apríl, kl. 8-10. Á fundinum munu sérfræðingar Skýrr og alþjóðlega öryggisfyrirtækisins HID kynna hvernig byggja má upp örugg starfsmannakort með öllum aðgangi á einu korti og sýna hvaða möguleikar opnast við innleiðingu þeirra.
Öryggiskröfur í atvinnulífinu aukast stöðugt, einkum hvað snertir örugga auðkenningu starfsfólks fyrirtækja og stofnana inn í húsnæði, netkerfi og fjölbreytileg upplýsingakerfi.
Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta, fimmtudaginn 15. apríl, kl. 8-10.
Á fundinum munu sérfræðingar Skýrr og alþjóðlega öryggisfyrirtækisins HID kynna hvernig byggja má upp örugg starfsmannakort með öllum aðgangi á einu korti og sýna hvaða möguleikar opnast við innleiðingu þeirra.
Fyrirlesarar verða þeir Robert Jansson ráðgjafi hjá HID og Sigurður Másson hópstjóri öryggis- og gagnalausna Skýrr.
Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).
Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Áætluð fundarlok eru kl. 10:00.
Skráning fer fram með því að senda einfaldan tölvupóst til skyrr@skyrr.is.
Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir. Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.
Dagskrá
Aðgengi að húsnæði
Robert Jansson
Ráðgjafi hjá HID
- Hvernig tryggja má að starfsmannakort séu samhæfð bæði við aðgangskerfi húsnæðis og aðgangskerfi tölvubúnaðar
- Hver er munurinn milli mismunandi auðkennismerkja (RFID)
- Hvað er auðkenniskort (RFID card)
- Hvað er öryggissnið (security format)
- Hvaða auðkennismerki (RFID) eru örugg og hver eru ekki eins örugg
- Hvaða staðlar og vörumerki eru í heimi auðkennismerkja (RFID)
- Hvernig getum við forðast "jarðsprengjusvæði" við að sameina aðgang tölvukerfa og húsnæðis á einu korti
Öruggt staðarnet
Sigurður Másson
Hópstjóri öryggis- og gagnalausna Skýrr
- Hvað er örugg prentun starfsmannakorta
- Hvernig má blanda saman notkun auðkennismerkja (RFID) og rafrænna skilríkja við auðkenningu inn í Windows
- Hvernig má nota öruggt starfsmannkort til auðkenningar VPN sambanda, örugg þráðlaus net eða vefgáttir svo sem SharePoint
- Notkun öruggra starfsmanna korta við einkvæma innskráningu (single sign on)
- Dulritun harðdiska
- Örugg prentun (secure printing)
- Sjálfsþjónusta notenda
- Rafrænar uppáskriftir /staðfestingar á skjölum innan fyrirtækis
- Hvað ber að athuga í tengslum við snjallkortalesara