Nýjasta nýtt - 27.04.2010

Morgunverðarfundur 30. apríl um veflausnir, samfélagsmiðla og markaðsetningu á netinu

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um veflausnir, föstudaginn 30. apríl, frá kl. 8-10

Kynningarstarfsemi, markaðssetning og auglýsingar á netinu verður sífellt mikilvægari þáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Undanfarin misseri hefur átt sér stað mikil þróun í þessum efnum, ekki síst hvað snertir samfélagsmiðla (social media) á borð við Facebook og Twitter. Atvinnulífið er enn að átta sig á byltingunni, læra á miðlana og skilja nytsemi þeirra.

Skýrr vill leggja sitt af mörkum í þessum efnum og bregðast við aukinni eftirspurn fyrir fræðslu.

Fundurinn er miðaður við áhugasvið og þarfir stjórnenda í atvinnulífinu og fólks sem með einum eða öðrum hætti kemur að markaðssetningu fyrirtækja og stofnana.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).

Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Áætluð fundarlok eru kl. 10:10.

Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.

Skráðu þig með því að senda póst til skyrr@skyrr.is

 

 

Dagskrá

 

Skýrr býður góðan dag
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr

Samfélagsmiðlar: Mesta bylting sem orðið hefur í markaðsmálum og menningu fyrirtækja fyrr og síðar
Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta

Virkjun krafta almennings við markaðssetningu
Guðmundur Ragnar Einarsson, ráðgjafi í vefmarkaðssetningu hjá Skapalóni

Social Marketing á tímum náttúruhamfara
Kjartan Sverrisson, eMarketing Manager hjá Icelandair

Auglýsingar á netinu: Hvað einkennir auglýsingaborða sem virka?
Lee Roy Tipton, þróunarstjóri nýmiðlunar hjá Hvíta húsinu

Umhverfi vefjarins: Frá vefstjóra til notenda
Óli Freyr Kristjánsson, ráðgjafi hjá Skýrr

Fundarstjóri
Sigrún Eva Ármannsdóttir, forstöðumaður veflausna Skýrr

 

Fleiri fréttir

Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.