Nýjasta nýtt - DD.08.YYYY

Nýir eigendur og stjórn hjá Advania

Hluthafafundur Advania fór fram í dag þar sem kjörin var ný stjórn og nýir eigendur, AdvInvest eignuðust 57% í fyrirtækinu.

Helstu atriði:
  • Alþjóðlegir fagfjárfestar hafa eignast tæplega 57% hlut í Advania.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins aukið í 22,5%.
  • Markmið að skrá félagið á markað á Íslandi og í Svíþjóð.
  • Þekking og reynsla nýrra hluthafa efla Advania enn frekar.

Hluthafafundur Advania fór fram í dag þar sem kjörin var ný stjórn og nýir eigendur, AdvInvest eignuðust 57% í fyrirtækinu. Framtakssjóður Íslands sem áður átti 71% á nú 32% og aðrir aðilar eiga því um 9.5% í fyrirtækinu. 

Reynslumikill stjórnarformaður

Thomas Ivarson sem fer fyrir fjárfestingafélaginu AdvInvest tekur við af Finnboga Jónssyni sem stjórnarformaður félagsins. Thomas hefur mikla reynslu úr heimi upplýsingatækninnar en undanfarna þrjá áratugi hefur hann leitt alþjóðleg upplýsingatæknifyrirtæki á borð við CMG, Logica, WM Data og CGI. 
„Advania er öflugt upplýsingafyrirtæki sem hefur náð eftirtekarverðum árangri sem vakti athygli okkar á fyrirtækinu og gerir það að góðum fjárfestingarkosti. Þá er staðsetning fyrirtækisins á Íslandi mikill styrkur, meðal annars vegna legur landsins og mikils framboðs á vel menntuðu og reynslumiklu starfsfólki”, segir Thomas Ivarson.

Öflug stjórn og fjárfestar

Auk Thomas Ivarson taka þau Birgitta Stymne Göransson og Bengt Engström sæti í stjórn Advania fyrir AdvInvest. Birgitta hefur langa reynslu sem einn af æðstu stjórnendum fjölda leiðandi fyrirtækja á sviði heilbrigðismála og upplýsingatækni í Svíþjóð. Bengt hefur einnig umtalsverða reynslu úr heimi upplýsingatækninnar og hefur m.a. verið forstjóri Fujitsu og ráðgjafi hjá BearingPoint. Auk þeirra eiga þau Katrín Olga Jóhannesdóttir og Kristinn Pálmason sæti í stjón. Varamenn eru Sampo Salonen, Rebekka Jóelsdóttir og Katarina Burton sem áður sat í aðalstjórn. 

„Ég er gríðarlega sáttur og bjartsýnn á framhaldið. Hér er kominn sterkur og öflugur hópur fjárfesta bæði með reynslu og þekkingu á rekstri alþjóðlegra upplýsingatæknifyrirtækja,  af fyrirtækjarekstri almennt og ýmsum stjórnarsetum. Það er okkur hjá Advania mikils virði að fá þessa verðmætu kunnáttu og reynslu inn í stjórnina. Með breytingunum erum við enn betur í stakk búin að takast á við komandi verkefni í framtíðinni” segir Gestur G. Gestsson forstjóri Advania. 

 

Fleiri fréttir

Fréttir
03.09.2026
Advania ALT (Advania AI Layer Technology) er ný lausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.
Fréttir
31.08.2026
Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.
Blogg
24.08.2026
Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu.  En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.