Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania. Mynd/Hörður Sveinsson
Fréttir - 3. september 2026Advania ALT flýtir fyrir innleiðingu og nýtingu gervigreindar – fyrsta lausn sinnar tegundar í Evrópu
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Advania ALT (Advania AI Layer Technology) er ný lausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.
Lausnin veitir aðgang að ólíkum gervigreindarlíkönum í gegnum eitt viðmót, á sama tíma og fyrirtæki halda fullri stjórn á gögnum, öryggi, notkun og kostnaði. Þetta er í fyrsta skipti sem slík lausn er í boði innan Evrópu.
„Eftir umtalsverða þróun erum við gríðarlega stolt af því að setja Advania ALT í loftið og gera íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta sér öruggan og skalanlegan grunn fyrir sína gervigreindarvegferð,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania.
Advania ALT tryggir að gervigreindin keyri á reikniafli staðsettu hér á landi og fara gögn viðskiptavina því aldrei út fyrir íslenska lögsögu. Hún er einnig þróuð til að uppfylla evrópskar kröfur um gagnavernd og stafrænt fullveldi og gerir fyrirtækjum á sama tíma kleift að þróa gervigreindarumhverfi sitt í takt við hraðar breytingar á markaðnum. Lausnin verður einnig í boði fyrir viðskiptavini á Norðurlöndunum og í Bretlandi frá og með september þar sem lögsaga er tryggð í hverju landi fyrir sig.
Haustráðstefna Advania fer fram í Hörpu 10. september og þar verður hægt að kynna sér Advania ALT á sýningarsvæði ráðstefnunnar.
Þann 9. september fer fram sérstakur gervigreindarviðburður í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni þar sem farið verður yfir hvernig fyrirtæki geta byggt upp traustan grunn fyrir sjálfvirkni og gervigreind. Á meðal þeirra sem fram koma eru frá Advania samstæðunni þeir Errol Norlum, framkvæmdastjóri gagna- og gervigreindarmála og Matías Rodríguez Paz vörustjóri gervigreindar, sem hafa leitt þróun og uppbyggingu Advania ALT.
„Gervigreind hefur skapað fjölmörg ný tækifæri, en hefur á sama tíma opnað á spurningar um öryggi, gagnastjórnun og fullveldi. Advania ALT svarar þessum spurningum og gerir viðskiptavinum okkar kleift að skapa raunverulegt virði með nýrri tækni af krafti og öryggi“, segir Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania.