Fréttir - 22. maí 2020

Öflugri tengsl við atvinnulífið með samstarfi Háskóla Íslands og 50skills

Háskóli Íslands og ráðningahugbúnaðurinn 50skills, vinna nú saman að því að efla tengingu milli atvinnulífs og nemenda skólans. Samstarfið felur í sér að viðskiptavinir 50skills, margir af stærstu vinnustöðum landsins, geta nú auglýst störf sín með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands.


Háskóli Íslands og ráðningahugbúnaðurinn 50skills, vinna nú saman að því að efla tengingu milli atvinnulífs og nemenda skólans. Samstarfið felur í sér að viðskiptavinir 50skills, margir af stærstu vinnustöðum landsins, geta nú auglýst störf sín með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands. Mannauðslausnir Advania veita viðskiptavinum 50skills þjónustu.

Virk þátttaka í samfélagi og atvinnulífi er ein af fjórum áherslum í stefnu Háskóla Íslands, HÍ21, þar sem samstarf rannsakenda, nemenda, atvinnulífs, stofnana og þjóðlífs er í forgrunni. Til þess að fylgja eftir þessu stefnumáli opnaði Háskólinn árið 2016 starfamiðluna Tengslatorg Háskóla Íslands á vefnum tengslatorg.hi.is. Markmiðið var að fjölga tækifærum stúdenta til að nýta færni úr háskólanámi í atvinnulífinu og að stuðla að frekara samstarfi nemenda og rannsakenda við starfsvettvang, stofnanir og atvinnulíf. Á vef Tengslatorgs er hægt að miðla störfum og verkefnum þar sem sérstaklega er leitað eftir mannauði úr röðum stúdenta. Frá því vefurinn var settur á laggirnar hefur hann vaxið og dafnað og hafa fjölmörg fyrirtæki fundið framtíðarstarfskrafta sína úr röðum stúdenta.

50skills er ráðningarhugbúnaður sem tugir af stærstu vinnuveitendum á Íslandi nota til að útbúa starfsauglýsingar, vinna úr starfsumsóknum og virkja nýtt starfsfólk á vinnustaðnum.
Með samstarfi Háskóla Íslands og 50skills geta viðskiptavinir fyrirtækisins nú endurbirt atvinnuauglýsingar með sjálfvirkum hætti á Tengslatorgi Háskóla Íslands endurgjaldlaust. Gildir þaðbæði um sumarstörf eða framtíðarstörf sem krefjast háskólamenntunar.

„Við í Háskóla Íslands fögnum mjög þessu samstarfi við 50skills. Tæknilegar lausnir fyrirtækisns tryggja enn betri tengsl atvinnulífsins við stúdenta Háskóla Íslands og ávinningurinn er beggja. Með þessu samstarfi er leiðin úr námi í starf gerð enn skilvirkari,“ segir Jónína Kárdal, verkefnisstjóri Tengslatorgs Háskóla Íslands.

„Við hjá 50skills erum stolt að geta lagt lóð á vogarskálarnar í að tengja saman íslenskt atvinnulíf og Háskóla Íslands. Við erum í einstakri stöðu til að koma á virkri tengingu á milli þeirra sem eru að sækjast eftir vinnuafli og þeirra sem sækjast eftir verkefnum,“ segir Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills.

Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.