Blogg - DD.08.YYYY

Öflugt og einfalt regluverk tryggir aðgengi að upplýsingatækni

Hér er fjallað um nauðsyn þess að setja lög um aðgengi hér á landi og fjallað um hvað við getum lært af öðrum þjóðum.

Í síðustu færslu var farið yfir mannréttindi, samfélagslega ábyrgð og ávinning af góðu aðgengi að hugbúnaði og vefjum. Hér verður farið yfir nauðsyn þess að setja lög um aðgengi hér á landi og fjallað um hvað við getum lært af öðrum þjóðum.

Hvers vegna eru lög og regla?

Réttindabarátta fatlaðra hefur sannað að góðvild dugar skammt þegar í harðbakkann slær. Það var ekki fyrr en opinberum stofnunum í Bandaríkjunum var gert skylt að tryggja aðgengi starfsmanna sinna að upplýsingatækni að fyrirtæki á borð við Microsoft og Adobe tóku við sér. Upphaflega löggjöfin (Section 508 of the Rehabilitation Act) er takmörkuð og gölluð en áhrifa hennar gætir þó víða. Án hennar væri óvíst að PDF skrár væru aðgengilegar fötluðum.

Aðgengislöggjöf skiptist í tvo flokka.

  1. Í fyrsta lagi má nefna lög sem kveða á um að vefsíður, snjallsímaöpp og rafræn skjöl uppfylli staðla eins og W3C Web Content Accessibility Guidelines 2.0. Accessibility for Ontarians with Disabilities Act (AODA) er annað gott dæmi. Löggjöfin nær yfir stofnanir og einkafyrirtæki í Ontario-fylki í Kanada. Ef vefsíður, skjöl og snjallsímaöppin þeirra uppfylla ekki WCAG 2.0 staðalinn má beita þau dagsektum upp á 100.000 Kanadadollara (um 10 milljón ISK). Löggjöfin byggir á sjálfsmati, skýrslum og eyðublöðum en ekki rannsóknum. Það er samdóma álit manna að löggjöfin hafi hindrað framfarir í aðgengi frekar en hitt.
  2. Í öðru lagi eru lög sem banna mismunun með óaðgengilegum vefsíðum og hugbúnaði. Eins og fram kom í fyrri bloggfærslu minni er grundvöllur slíkra laga samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hann jafngildir lögum í þeim ríkjum sem fullgilt hafa samninginn. Sums staðar í heiminum er í gildi aðgengislöggjöf sem gengur lengra en samningurinn eða kveður nánar á um útfærslu hans. 

Allt að gerast í Ameríku

Bandarísk hagsmunasamtök fatlaðra hafa náð að knýja fram ýmsar aðgengisumbætur í krafti aðgengislaga. Bandaríkjamenn eru brautryðjendur á sviði lögsókna vegna ófullnægjandi aðgengis þó þeir hafi ekki  fullgilt samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks en fyrir það hafa bandarísk stjórnvöld verið gagnrýnd harðlega. Helstu lög og reglugerðir um aðgengi þar í landi eru: 

Viðamikil aðgengislöggjöf gildir í löndum eins og í Bretlandi, Kanada , Nýja Sjálandi og Ástralíu. Skoða má lista yfir yfir aðgengislög í ýmsum löndum á vef LF Legal.

Aðgengi og dómsmál

Fyrsta dómsmál sögunnar sem tengist vefaðgengi beint var höfðað í Ástralíu vegna vefs Ólympíuleikanna í Sydney árið 2000. Vefsvæðið var afar óaðgengilegt blindum notendum. Dómurinn féll kæranda í vil. Í Bandaríkjunum vannst mál gegn Target verslunarkeðjunni árið 2006 vegna þess að vefsvæðið var óaðgengilegt. Fyrirtækinu var gert að greiða 8 milljónir dollara (jafnvirði um 970 milljónir isk.) í skaðabætur og gera vefsvæðið aðgengilegt. Árið 2012 var Netflix gert að texta allt margmiðlunarefni sem hægt er að streyma í gegnum vefsíðu þess. Í mars 2012 var H&R Block sem aðstoðar einstaklinga við skattframtöl gert að greiða háar sektir og að gera vefsvæði sitt og snjallsímaöpp aðgengileg. Í apríl síðastliðnum var stofnuninni sem sér um inntökupróf í lögfræðinám á háskólastigi (LSAT próf) gert að greiða 9 milljónir dollara (um 1,1 milljarður ISK) í sekt vegna mismununar, m.a. vegna skorts á aðgengi að rafrænum prófum. Dómsmálum vegna ónógs aðgengis fer fjölgandi í Bandaríkjunum og snerta ekki lengur aðeins aðgengi blindra og sjónskertra heldur einnig fólk með heyrnarskerðingu og lesblindu. Lesa má um helstu aðgengisdómsmál á síðastliðnum árum á vefnum og dómsmál síðustu 6 mánaða.

Lög eru eitt, aðgengi annað

Lagasetning dugar skammt nema henni sé fylgt eftir. Fárviðri braust út á Twitter þegar í ljós kom að Undirskriftasíða Hvíta Hússins fyrir betra aðgengi blindra og sjónskertra að bókum var þeim óaðgengileg. Meðal vefsvæða sem hagsmunasamtök hafa kært vegna aðgengisskorts er vefsvæði stofnunarinnar sem sér um framkvæmd aðgengislaganna sjálfra og Social Security Administration sem jafngildir Tryggingastofnun hér á landi.

Aðgengislöggjöf, Evrópusambandið og Ísland

Þó lönd innan ESB hafi sett sér aðgengislöggjöf er engin löggjöf í gildi um aðgengi hjá sambandinu sjálfu. Breytinga er þó að vænta. Tilskipun um aðgengi opinberrar rafrænnar þjónustu og almenningsþjónustu einkaaðila hefur verið samþykkt af Evrópuþinginu og er í ferli hjá Framkvæmdastjórn ESB. Undirritaður lagði mikla vinnu í athugasemdir við  tilskipunina fyrir hönd hagsmunasamtaka fatlaðra í Evrópu og voru þær teknar til greina. Tilgangurinn er m.a.: 

  • Að staðla aðgengiskröfur svo auðveldara verði að uppfylla þær
  • Að tryggja eftirlit 
  • Að tryggja að löggjöfin gildi um allar þjónustuleiðir s.s.  vefsvæði, snjallsímaöpp, samfélagsmiðla o.s.frv.
  • Að beita þá sem ekki uppfylla tilskipunina viðurlögum 

Tilskipunin tekur í fyrsta lagi gildi eftir 2 til 3 ár. Síðan fá hagsmunaaðilar nokkurra ára frest til að fara eftir henni. Líklegt er að tilskipunin gildi fyrir íslenska aðila. Þú getur hlaðið niður kynningu á Evróputilskipuninni sem undirritaður hélt á CSUN 2014 ráðstefnunni síðastliðið vor.

Allt með kyrrum kjörum á Fróni

Á Íslandi er engin löggjöf um aðgengismál og aðgengi er ekki metið í innkaupum hins opinbera. Aðgengi er skoðað á opinberum vefsvæðum á tveggja ára fresti en enginn heldur utan um ábendingar sem berast vegna skorts á aðgengi enda eru engin viðurlög við slíku. Skortur er á fræðslu- og námsefni tengdu aðgengi. Þó kafli um aðgengi sé í Vefhandbókinni dugar það skammt. Af framansögðu er ljóst að reglur þurfa að tryggja lágmarks aðgengi og fylgjast þarf með framkvæmd þeirra. Regluverkið á að vera einfalt og því þarf að fylgja fræðsla. Ennfremur þarf að skapa markað fyrir aðgengilega upplýsingatækni með því að hið opinbera geri kröfu um slíkt í innkaupum sínum.

Í síðustu færslunni um þessi mál í bili mun ég fjalla um af hverju fólk hræðist aðgengi, hvað gera þarf til að einfalda aðgengisfræðslu og prófanir. Einnig mun ég benda á nokkur einföld atriði sem hafa ber í huga í hönnun vefsvæða. 

Fleiri fréttir

Blogg
10.05.2019
Hvað getur sagan kennt okkur um fjórðu iðnbyltinguna? Það skyldi þó aldrei vera að sagan endurtaki sig eða við gætum lært af henni? Að ný tækni taki ekki almennilega á sprett fyrr en hún hefur náð ákveðinni lágmarks viðspyrnu.
Blogg
09.05.2019
Notendur Windows 7, Office 2010, SQL 2008/R2 og Windows Server 2008/R2 þyrftu að gera ráðstafanir í tengslum við að Microsoft hættir stuðningi við þessar útgáfur á næstunni.
Blogg
06.05.2019
Ef vinur þinn segir þér að þú hafir sent undarlegan tölvupóst eða sett skrýtin innlegg á samfélagsmiðla sem þú ert ekki líklegur að gera, þá ættu viðvörunarbjöllur að hringja Líklegast hefur einhver komist inn á reikninginn þinn án þess að þú tækir eftir því.
Blogg
30.04.2019
Rafrænt kosningakerfi sem þróað er af Advania, er vel í stakk búið til að annast þjóðaratkvæðagreiðslu. Kerfið nýttist vel í kosningum um Lífskjarasamningana og sparaði stéttarfélögum landsins tugi milljóna.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar kemur að útvistun á tölvuumhverfi er mikilvægt að velja öflugan og áreiðanlegan þjónustuaðila. Með rekstrarþjónustu Advania sjá sérfræðingar okkar um daglegan rekstur upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar tengingin skiptir öllu máli, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar þú ert með mikilvæga bókun, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Advania er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands. Advania vill auðvelda úrlausn á þeim fjölmörgu flóknu tæknimálum sem Knattspyrnusambandið stendur frammi fyrir og gera því kleift að einbeita sér að sínu sérsviði, fótbolta.
Myndbönd
04.04.2019
Hér má heyra hvernig Friðrik Heiðar Blöndal upplýsingatæknitækistjóri Ölgerðarinnar hefur upplifað alrekstrarþjónustu Advania.
Myndbönd, Nýjasta nýtt
04.04.2019
Nú er sjálfsafgreiðsla valkostur í öllum stærstu matvörukeðjum landsins. Við spurðum neytendur hvernig þeim líkar sjálfsafgreiðslan og þetta eru svörin sem við fengum.
Myndbönd
04.04.2019
50skills er nú hluti af mannauðslausnamengi Advania. Svona lýsa notendur upplifun sinni af mannauðslausninni 50skills.
Blogg
04.04.2019
Viðskiptavinamiðuð stefna er eitt heitasta slagorðið í viðskiptaheiminum í dag. Hvers vegna ættu fyrirtæki að tileikna sér slíka stefnu?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.