Blogg - DD.01.YYYY

Tækniárið 2015 verður spennandi

Greiningafyrirtækið Gartner hefur nýlega gefið út yfirlit yfir þá þætti sem helst munu ráða þróun upplýsingatækni á því ári sem nú er að hefjast.

Greiningafyrirtækið Gartner hefur nýlega gefið út yfirlit yfir þá þætti sem helst munu ráða þróun upplýsingatækni á því ári sem nú er að hefjast. Það er athyglisvert að sjá hvað listinn er í góðu samræmi við það sem fyrirlesarar á Haustráðstefnu Advania í september síðastliðnum fjölluðu um í sínum erindum. 

Hraðari þróun snjallsímatækni  

Greiður aðgangur notenda að hugbúnaði og efni verður aðalmálið í þróun snjallsímatækni. Núna gildir að þróa lausnir fyrir notendur sem þeir geta nýtt við margvíslegar aðstæður og tilefni í stað þess að einblína á tækin sjálf.  

Hvað gerist þegar allir hlutir eru nettengdir?

Gartner fjallar um það sem hefur verið kallað Internet of Things sem vísar til samtengingu allra hluta við Internetið. Þessi þróun mun halda áfram samkvæmt Gartner og skapa stórum sem smáum fyrirtækjum ný tækifæri til tekjusköpunar og hagræðingar. Nú þegar eru komin fram dæmi þar sem að þessi tækni skapi  möguleika á því að fyrirtæki leigi framleiðslutæki til skamms tíma eða þá að ökumenn kaupi tryggingu fyrir einstakar ökuferðir.

Jim Grubb sem er Chief Demonstration Officer hjá Cisco hélt  áhugaverðan fyrirlestur um þessi mál á Haustráðstefnunni. 

Þrívíddarprentun 

Gartner spáir því að sala á þrívíddarprenturum muni tvöfaldast á árinu 2015 og aftur verði tvöföldun á sölu þeirra á árinu 2016. Ný not fyrir þrívíddarprentun á sviði iðnaðar, líftækni og neysluvara munu drífa áfram þessa eftirspurn. Vafalaust eru enn til staðar tækifæri og not fyrir þessa tækni sem við höfum enn ekki gert okkur grein fyrir sem munu skila framþróun og sparnaði í iðnaði og framleiðslu. Á Haustráðstefnu Advania var fjallað um hvernig þrívíddarprentun hefur auðveldað verulega undirbúning flókinna skurðaðgerða hér á landi og sparað bæði tíma og fjármagn í úrlausn og eftirfylgni slíkra aðgerða.  

Greining gagna 

Gagnamagn sem á uppruna sinn innan og utan fyrirtækja eykst stöðugt og tala menn um enn frekari nýtingu á því sem kallað hefur verið „Big Data“ í þessu samhengi þvi enn eru óvirkjaðar gagnalindir sem geta skapað ógrynni af upplýsingum. Á meðal þeirra eru til dæmis kvittanir úr viðskiptakerfum, aflestur orkumæla, hitamöppun í verslunum, nettengd tæki hverskonar og samfélagsmiðlar. Samkvæmt Gartner er mikilvægt fyrir fyrirtæki að greina og nýta þessi gögn en gríðarmikil áskorun er að sía út þau gögn sem skipta máli úr gagnaflóðinu og mun sú vinnsla kalla á aukna afkasta og reikningetu.  

Snjallvélar 

Gartner vekur athygli á hugtakinu „Smart Machines“ – sem kannski ætti þýða sem snjallvélar á íslensku en þetta hugtak vísar til hug- eða vélbúnaðar sem lærir á umhverfi sitt og tekur sjálfstæðar ákvarðanir. Dæmi um þetta eru sjálfkeyrandi bílar, vélmenni og hugbúnaður eins og Siri frá Apple eða Cortana frá Microsoft sem má í raun kalla einkaritara í snjallsímum. Að mati  Gartner gæti hér á ferðinni verið ein mikilvægasta þróunin í upplýsingatækni í dag. 


Framþróun skýjaþjónustu 

Skýjatæknin heldur áfram að þróast og samkvæmt Gartner verður áherslan á að skila efni og hugbúnaði til notenda óháð þeim tækjum sem eru nýtt á hverjum tíma. Jesper Ritsmer Stormholt sem stýrir Google for Work á Norðurlöndunum fjallaði einmitt um þetta efni á Haustráðstefnunni og lýsti þar á skemmtilegan hátt stefnu Google um skýjalausnir og hvernig þeir hyggjast breyta heiminum til hins betra með nýtingu slíkra lausna á sviði viðskipta, menntunar og hjá hinu opinbera.  

Upplýsingaöryggi

Öryggi gagna og hugbúnaðar er lykill að skilvirkri framþróun í upplýsingatækni en samkvæmt Gartner verða fyrirtæki að beita sértækum og háþróuðum aðferðum og hugbúnaði við áhættumat og öryggisvarnir. Á Haustráðstefnu Advania var farið ítarlega yfir stöðu upplýsingaöryggis á Íslandi í fyrirlestri Theódórs R. Gíslasonar.  

Af ofangreindu má ráða að árið 2015 verður svo sannarlega spennandi fyrir okkur sem störfum í upplýsingatæknibransanum. 

  
                               
                               
  
  
  
 

Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.