Fréttir - 14. maí 2020

Vefgátt fyrir tilkynningar á öryggisbrestum   

Ný tilkynningagátt um öryggisbresti var opnuð af samgönguráðherra í dag. Gáttin auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna um öryggisatvik sem kunna að koma upp í þeirra rekstri.

Ný tilkynningagátt um öryggisbresti var opnuð af samgönguráðherra í dag. Gáttin auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að tilkynna um öryggisatvik sem kunna að koma upp í þeirra rekstri.


Tilkynningargáttin oryggisatvik.island.is var smíðuð af veflausnum Advania með stuðningi samgöngu- og sveitarstjórnunarráðuneytisins . Hún er rekin af Póst- og fjarskiptastjórnun og Persónuvernd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kemur einnig að verkefninu.
Vefgáttin er einföld og notendavæn. Þar geta fyrirtæki og stofnanir tilkynnt um netárásir, netglæpi eða öryggisbresti sem snúa að vinnslu persónuupplýsinga.

Samkvæmt persónuverndarlögum ber að tilkynna um öryggisbresti við vinnslu persónuupplýsinga innan 72 klukkustunda. Þann 1. september 2020 ber einnig að tilkynna alvarleg öryggisatvik til CERT-IS og netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar. Með tilkomu gáttarinnar er orðið auðveldara að tilkynna um öryggisatvik.

Mikill tímasparnaður er fólgin í því að geta nú með einföldum hætti tilkynnt öllum viðeigandi aðilum um stöðu mála í stað þess að margskrá sömu upplýsingar í ólík kerfi. Með hverri tilkynningu fylgja ítarlegar upplýsingar sem hjálpa þeim stofnunum sem við þeim taka að vinna úr þeim. 

„Netöryggi og vend persónuupplýsinga er gríðarlega mikilvægt verkefni. Við vitum að íslensk fyrirtæki hafa tapað milljörðum króna vegna netárása og mörg þeirra vegra sig við að tilkynna öryggisatvik. Því má gera ráð fyrir að tapið sé mörgum sinnum meira. Við höfum unnið að því á síðustu árum að bæta lagaumgjörð á þessum sviðum og efla vitund um netöryggi. Með nýrri tilkynningagátt er stórt skref stigið í að bæta þjónustu hins opinbera,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem opnaði gáttina með formlegum hætti í dag ásamt þeim Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, Hrafnkatli V. Gíslasyni, forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar og Sigríði Björk Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra. Hrafnhildur Sif Sverrisdóttir, Hrefna Arnardóttir, Jón Heiðar Sigmundsson og Haukur Óskar Hafþórsson frá veflausnum Advania voru einnig viðstödd við opnunina.

Sérfræðingar veflausna Advania unnu að tæknilegri- og grafískri hönnun, forritun, verkefnastjórnun og uppsetningu gáttarinnar. Mikil áhersla var á öryggi og aðgengi og er notast við rafræn skilríki til innskráningar. 

Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.