Fréttir - 6. mars 2020

Vefmyndavél af bjargráðum á Laugardalsvelli

Advania og KSÍ hafa komið upp vefmyndavél á Laugardalsvelli. Þar má fylgjast með því hvernig snæviþakinn völlurinn verður með afar frumlegum hætti gerður leikhæfur fyrir mikilvæga viðureign við Rúmeníu í lok mars.

Advania og KSÍ hafa komið upp vefmyndavél á Laugardalsvelli. Þar má fylgjast með því hvernig snæviþakinn völlurinn verður með afar frumlegum hætti gerður leikhæfur fyrir mikilvæga viðureign við Rúmeníu í lok mars.

Advania og KSÍ streyma nú beint frá Laugardalsvelli á meðan hann verður undirbúinn fyrir leik A-landsliðs karla gegn Rúmeníu þann 26.mars. Áratugir eru síðan síðast var spilaður landsleikur á Laugardalsvelli á þessum árstíma en vegna leikjafyrirkomulags UEFA verður það gert í ár. Leikurinn gegn Rúmeníu er afar mikilvægur umspilsleikur fyrir lokakeppni EM sem fram fer í sumar.

Gríðarlegt átak þarf til að gera Laugardalsvöll leikhæfan því eins og staðan er í dag er hann þakinn snjó. Í dag, föstudag, var sérpantað hitatjald frá Bretlandi sett yfir völlinn allan til að losa um frost og kulda í grasinu. Á næstu þremur vikum verður dúkurinn svo fjarlægður nokkrum sinnum svo hægt sé að valta, mála og mögulega slá grasið. Dúkurinn verður á vellinum allt fram til degi fyrir leik.

En hvernig er gras á Íslandi í lok mars á svona snjóþungum vetri?
„Grasið er í dvala og þó við séum að hita það upp þá fer það auðvitað ekki að spretta eins og um sumar. Aðgerðir okkar snúast fyrst og fremst um að gera leikflötinn eins góðan og hægt er svo hann sé öruggur fyrir leikinn. Þetta er auðvitað mjög óvenjulegt ástand og við höfum fengið til liðs við okkur mikla grassérfræðinga frá Bretlandi sem vakta völlinn allan sólarhringinn fram að leik," segir Óskar Örn Guðbrandsson á samskiptasviði KSÍ.

Bresku grassérfræðingarnir munu bókstaflega búa á Laugardalsvelli þar til leikurinn við Rúmeníu fer fram en komið hefur verið upp svefnaðstöðu fyrir þá undir stúkunni. Það er ljóst að verulega frumlegar leiðir verða farnar til að koma vellinum í gott horf enda þykir frekar fáheyrt í öðrum UEFA löndum að þjóðarleikvangar séu ekki með upphitaða grasvelli.

„Sem bakhjarlar KSÍ þá látum við okkur þessi mál varða og vonum innilega að hægt verði að spila leikinn á Laugardalsvelli. Þegar tækninni fleygir fram er hægt að gera ótrúlegustu hluti í erfiðum aðstæðum," segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania.

Þeir sem vilja fylgjast með framvindunni geta horft á streymi KSÍ og Advania hér: 
#PrayforLaugardalsvollur 

Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.