Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 3. september 2026

Advania ALT flýtir fyrir innleiðingu og nýtingu gervigreindar – fyrsta lausn sinnar tegundar í Evrópu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania ALT (Advania AI Layer Technology) er ný lausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.

Lausnin veitir aðgang að ólíkum gervigreindarlíkönum í gegnum eitt viðmót, á sama tíma og fyrirtæki halda fullri stjórn á gögnum, öryggi, notkun og kostnaði. Þetta er í fyrsta skipti sem slík lausn er í boði innan Evrópu.

„Eftir umtalsverða þróun erum við gríðarlega stolt af því að setja Advania ALT í loftið og gera íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta sér öruggan og skalanlegan grunn fyrir sína gervigreindarvegferð,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania.

Advania ALT tryggir að gervigreindin keyri á reikniafli staðsettu hér á landi og fara gögn viðskiptavina því aldrei út fyrir íslenska lögsögu. Hún er einnig  þróuð til að uppfylla evrópskar kröfur um gagnavernd og stafrænt fullveldi og gerir fyrirtækjum á sama tíma kleift að þróa gervigreindarumhverfi sitt í takt við hraðar breytingar á markaðnum. Lausnin verður einnig í boði fyrir viðskiptavini á Norðurlöndunum og í Bretlandi frá og með september þar sem lögsaga er tryggð í hverju landi fyrir sig.

Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania. Mynd/Jón Snær Ragnarsson

Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania. Mynd/Jón Snær Ragnarsson

Haustráðstefna Advania fer fram í Hörpu 10. september og þar verður hægt að kynna sér Advania ALT á sýningarsvæði ráðstefnunnar.

Þann 9. september fer fram sérstakur gervigreindarviðburður í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni þar sem farið verður yfir hvernig fyrirtæki geta byggt upp traustan grunn fyrir sjálfvirkni og gervigreind. Á meðal þeirra sem fram koma eru frá Advania samstæðunni þeir Errol Norlum, framkvæmdastjóri gagna- og gervigreindarmála og Matías Rodríguez Paz vörustjóri gervigreindar, sem hafa leitt þróun og uppbyggingu Advania ALT.

„Gervigreind hefur skapað fjölmörg ný tækifæri, en hefur á sama tíma opnað á spurningar um öryggi, gagnastjórnun og fullveldi. Advania ALT svarar þessum spurningum og gerir viðskiptavinum okkar kleift að skapa raunverulegt virði með nýrri tækni af krafti og öryggi,“ segir Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania.

Fleiri fréttir

Blogg
03.09.2014
Ég tók við sem tæknistjóri Nordic Ecolabel í ársbyrjun 2011. Mín helsta áskorun var að ekkert miðlægt upplýsingatækniumhverfi var fyrir hendi.
Blogg
26.08.2014
Hér er fjallað um nauðsyn þess að setja lög um aðgengi hér á landi og fjallað um hvað við getum lært af öðrum þjóðum.
Blogg
13.08.2014
Þegar við opnuðum nýja Nike Air verslun í Smáralind vildum við fara ótroðnar slóðir í þjónustu við viðskiptavininn.
Blogg
05.08.2014
Um samfélagslega ábyrgð og ávinning samfélagsins af aðgengilegri upplýsingatækni.
Blogg
30.07.2014
Vilma Kristín Baldvins Svövudóttir hjá upplýsingatæknideild Ölgerðarinnar fjallar um um nýju útgáfuna á Microsoft Dynamics AX.
Blogg
25.06.2014
Ég var svo lánsöm að fá tækifæri til að fara á ráðstefnu sem haldin var í Las Vegas af hugbúnaðarrisanum IBM. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Information on Demand“
Blogg
04.06.2014
Í framþróun lausna fyrir snjalltæki hefur öryggi farið halloka. Sveinbjörn Óskarsson segir hér frá lokaverkefni sínu í tölvunarfræði sem fjallar um þetta efni.
Blogg
28.05.2014
Menntaskólinn á Akureyri innleiddi Office 365 fyrir skólann og nú fer mun minni tími en áður fer í að halda grunnþjónustu gangandi enda eru hugbúnaðaruppfærslur hluti af þjónustunni.
Blogg
21.05.2014
Minna en 30% af vinnuafli í upplýsingatækni í Evrópu eru konur. Þann 30. apríl var dagurinn Stelpur og tækni haldinn í fyrsta sinn til að auka áhuga stelpna á upplýsingatækni.
Blogg
14.05.2014
Nútíma tölvuumhverfi er að breytast gríðarlega og því er ætíð spennandi að sjá hvaða skilaboð koma fram í opnunarræðu TechEd ráðstefnunnar.
Blogg
07.05.2014
Í apríl gaf Landsbankinn út nýjan tölvuleik, Fjármálahreysti, sem er ætlað að efla fjármálalæsi ungmenna.
Blogg
29.04.2014
Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.