Á myndinni má sjá ...

businesscentral.advania.is - 02.05.2026

Advania LS Retail Diamond Partner 2026: Fjórða árið í röð

Advania hlaut viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail nú á dögunum.

Viðurkenningin var veitt á árlegri ráðstefnu LS Retail, conneXion, sem að þessu sinni var haldin í Wiesbaden í Þýskalandi og er þetta fjórða árið í röð sem Advania hlýtur þessa viðurkenningu.

LS Retail Partner Awards eru veitt til samstarfsaðila sem skara fram úr hvað varðar vöxt, fagmennsku og árangur í innleiðingum lausna LS Retail.

Árið 2026 náðu 20 samstarfsaðilar Gold stöðu, 22 Platinum stöðu og aðeins 34 samstarfsaðilar Diamond stöðu, sem er hæsta viðurkenning LS Retail veitir til sinna samstarfsaðila.

LS Retail býr yfir einu stærsta samstarfsaðilaneti innan Microsoft Dynamics samfélagsins með yfir 300 vottaða samstarfsaðila í 157 löndum. Þeir gegna lykilhlutverki í sölu, innleiðingu og þjónustu lausna LS Retail og tryggja þannig staðbundna sérþekkingu og vandaða þjónustu við viðskiptavini um allan heim.

Nánari upplýsingar um LS Retail Partner Awards 2026 og alla þá samstarfsaðila sem hlutu viðurkenningu má finna í tilkynningu LS Retail, sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins:
Announcing the LS Retail partner awards recipients 2026

Advania er traustur sölu- og þjónustuaðili LS Retail á Íslandi og gegna lausnir LS Retail lykilhlutverki í heildarlausnum Advania fyrir verslunargeirann. Lausnirnar ná yfir allt frá afgreiðslu- og kassakerfum yfir í vefverslanir, sjálfsafgreiðslu, birgða- og innkaupastýringu og aðrar samþættar lausnir sem styðja við nútímalegan verslunarrekstur - bæði fyrir stórar og smáar verslanir.

Að halda Diamond Partner stöðu í fjögur ár í röð er sterk staðfesting á djúpri tæknilegri þekkingu, reynslu og metnaði teymis Advania, auk náins og farsæls samstarfs við LS Retail og viðskiptavini félagsins. Viðurkenningin endurspeglar einnig skuldbindingu Advania til að skila lausnum af hæsta gæðaflokki sem skapa raunverulegt virði í daglegum rekstri.

Advania er stolt af þessum árangri og þakkar LS Retail fyrir traustið - sem og viðskiptavinum og starfsfólki fyrir framúrskarandi samstarf og árangur sem gerir þetta mögulegt, ár eftir ár.

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.