Gervigreindarskýið mun opna fyrir raunverulega hagnýtingu gervigreindar í rekstri og nýsköpun íslenskra fyrirtækja og stofnana hér á landi.

Fréttir - 10. júní 2025

Advania og NVIDIA vinna að uppsetningu á séríslensku gervigreindarskýi

Advania vinnur að því ásamt NVIDIA að setja upp séríslenskt gervigreindarský, þjónustu sem tryggir íslensku atvinnulífi aðgengi að nauðsynlegu reikniafli til þess að knýja áfram aukna eftirspurn eftir gervigreindarvinnslum. Hérlent gervigreindarský takmarkar nauðsyn mikilla fjárfestinga fyrirtækja og stofnana á fyrstu stigum við innleiðingu og nýtingu gervigreindar, ásamt því að öryggi gagna verður að fullu tryggt.

Gervigreindarskýið er hluti af víðtækari stefnu Advania um að auka stafræna getu og upplýsingatækniþjónustu eftir þörfum fyrirtækja og stofnanna og liður í þeirri vegferð að tryggja stafrænt fullveldi Íslands (e: sovereign AI).

Með því að bjóða upp á gervigreindarský ætlar Advania að styðja atvinnulífið á Íslandi enn betur í stafrænu umbreytingarferli og veita aðgang að þeirri reiknigetu sem nauðsynleg er til að knýja fram nýsköpun og skilvirkni með gervigreind.

Samstarfið við NVIDIA, sem er eitt stærsta tæknifyrirtæki heims og leiðtogi í GPU tækni, styrkir stoðir og skuldbindingu Advania til að veita viðskiptavinum sínum háþróaðar lausnir. Linda Malm, Regional Manager Enterprice – Nordics hjá NVIDIA Partner Manager fyrir Norðurlöndin og Bretland hjá NVIDIA, lýsti yfir ánægju með samstarfið og segir það „Við erum spennt fyrir samstarfinu, og þeim framsæknu gervigreindarlausnum sem við kynnum fyrir íslenska markaðinum. Með þeim hjálpum við viðskiptavinum að hámarka afköst og auka velgengni.“

Mikilvægi gervigreindarfullveldis (e. Sovereign AI)

Gervigreindarfullveldi er lykilþáttur í gervigreindarskýinu sem leggur áherslu á mikilvægi þess að þjóðir haldi stjórn á gervigreindarinnviðum, gögnum og tækni. Gervigreindarfullveldi  gerir löndum kleift að:

  • Viðhalda gervigreindarfullveldi og öryggi: Með því að halda viðkvæmum gögnum innan lögsögu geta lönd og fyrirtæki tryggt öryggi gagna og aukið traust meðal borgara sinna.
  • Aðlögun að menningu og tungumáli hvers lands: Gervigreindarfullveldi gerir fyrirtækjum og löndum kleift að þróa gervigreindar módel sem eru sniðin að menningu og samfélagslegum þörfum landsins og varðveita tungumál og menningu.
  • Tæknilegt sjálfstæði: Með því að minnka hversu háð lönd og fyrirtæki eru erlendum gervigreindarskýjum, er verið að auka gervigreindarfullveldi landa. Að hafa stjórn á eigin gögnum styður við aukið fullveldi og höfundarrétt.
  • Efnahagsleg samkeppnishæfni: Þróun gervigreindarfullveldis getur stuðlað að auknum hagvexti  þjóða og samkeppnishæfni á alþjóðlegum gervigreindar vettvangi.
  • Þjóðaröryggi: Með því að stjórna þróun og innleiðingu gervigreindar geta lönd sett sínar eigin siðferðislegu leiðbeiningar og reglugerðir til að tryggja samræmi við þjóðarhagsmuni.

Hafsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækniþjónustu hjá Advania, segir:

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við NVIDIA til að koma á gervigreindarskýi sem þjónustu til Íslands. Þessi þjónusta mun veita fyrirtækjum reiknigetu sem þau þurfa fyrir nýsköpun og til að vera samkeppnishæf á stafrænum tímum. Áherslan á gervigreindarfullveldi tryggir að mikilvæg gögn og tækniframfarir haldist örugg á Íslandi og í takt við okkar menningar- og efnahagslegu markmið.“

Linda Malm og Hafsteinn Guðmundsson.

Linda Malm og Hafsteinn Guðmundsson.

Um Advania

Advania er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatæknilausnum á Íslandi sem býður upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal skýjalausnir, upplýsingatækni innviði og rekstrarþjónustu. Með áherslu á nýsköpun og ánægju viðskiptavina hjálpar Advania fyrirtækjum að takast á við flækjustig upplýsingatækni og stafræna umhverfisins.

Um NVIDIA

NVIDIA er alþjóðlegur leiðtogi í GPU tækni, þekkt fyrir framlag sitt til gervigreindar, vélnám og vinnslu sem krefst mikillar afkastagetu. GPU tæki frá NVIDIA eru notuð í ýmsum atvinnugreinum við gervigreindarvinnsluverkefnum og knýja fram tækniframfarir.

Fleiri fréttir

Blogg
13.11.2013
Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað að eiga nýjan og fínan bíl en keyra hann á gömlum og slitnum dekkjum.
Blogg
06.11.2013
Ráðgjafafyrirtækið Gartner telur að fjórir kraftar muni hafa hvað mest áhrif á þróun upplýsingatækni í næstu framtíð; Cloud, Big Data, Mobile og Social.
Blogg
30.10.2013
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Blogg
23.10.2013
Til að ná sem bestum árangri verða stjórnendur og aðrir starfsmenn ávallt að vera með puttann á púlsinum.
Blogg
15.10.2013
Í nýrri útgáfu af TOK bókhaldskerfinu geta notendur sent og móttekið pappírslausa (rafræna) reikninga og sparað sér bæði tíma og peninga.
Blogg
02.10.2013
Nú er komin ný útgáfa af PowerPivot sem er hluti af Microsoft Excel 2013 Professional plus Edition.
Blogg
24.09.2013
Þegar heim er komið með nýja og fína tölvu er ágætt að verja nokkrum mínútum í að auka öryggi henna
Blogg
19.09.2013
Um 900 manns tóku þátt í eftirminnilegri Haustráðstefnu Advania sem fór fram 6. september síðastliðinn.
Blogg
11.09.2013
Þegar iPaddinn leit dagsins ljós fyrir nokkru fannst einhverjum þetta léttvægt tæki með takmarkaða notkunarmöguleika
Blogg
25.06.2013
Ávinningur af viðskiptagreind felst til dæmis í aukinni þekkingu sem stjórnendur og starfsmenn fá á starfsemi fyrirtækisins.
Blogg
18.06.2013
Hér eru nokkur góð ráð um hvernig þú getur tekið völdin af Outlook og stjórnað tímanum þínum sjálf(ur).
Blogg
11.06.2013
Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem nota Internetið hvað mest en þrátt fyrir það þá kjósum við langoftast með „gamla laginu“
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.