Mynd/Hörður Sveinsson

F&O, Blogg - 14. október 2026

F&O í framkvæmd – lausnir, nýjungar og reynsla

Vilma Kristín Baldvins Svövudóttir
Sérfræðingur, Viðskiptalausnir

Viðskiptalausnasvið Advania hélt morgunverðarfund þann 13. október 2026. Kynntar voru íslenskar sérlausnir fyrir Dynamics 365 Finance & Operations.

Birna Guðbjörg Björnsdóttir, ráðgjafi hjá Advania, fór á viðburðinum yfir virkni Advania Lausnapakka og Olga Helena Kristinsdóttir, hugbúnaðarsérfræðingur Advania, kynnti Advania Bankalausnir. Í lokin steig María Vilborgardóttir, Cashier of Funding and Treasury hjá atNorth, á svið og sagði frá reynslu sinni í notkun lausnanna.

Aukin skilvirkni og léttara líf með Advania Lausnapakka

Innan Advania Lausnapakkans eru ýmsar vinnslur sem létta líf notanda, auka skilvirkni og bæta gagnauppsetningu. Lausnirnar eru sérsniðnar að íslensku viðskiptaumhverfi og gefa notendum tækifæri til að tengjast íslenskum stofnunum svo sem Ríkisskattstjóra og Þjóðskrá.

Birna fór yfir hvernig hægt er að skila verktakamiðum rafrænt inn til Ríkisskattstjóra beint úr Dynamics 365 Finance & Operations. Viðhald vegna verktakamiða innan kerfisins er sveigjanlegt og auðvelt að breyta merkingum á lánardrottnum og einstökum reikningum áður en gögn eru send inn.  Innan Advania Lausnapakka er einnig boðið upp á að stofna virðisaukaskattsskýrslur og senda þær rafrænt inn til skattsins. Sending á skilum til ríkisskattstjóra og kvittanir fyrir móttöku er skráð innan Advania Lausnapakkans sem veitir aukna yfirsýn.

Innan Advania Lausnapakka er einnig tenging við þjóðskrá og fór Birna yfir hvernig hægt er að sækja nöfn og heimilisföng þaðan við stofnun viðskiptavina, lánardrottna eða starfsmanna. Með innbyggðum keyrslum er einnig hægt að uppfæra nöfn og heimilisföng miðað við skráningu í Þjóðskrá reglulega. Boðið er upp á beintengingu við þjóðskrá þar sem flett er upp einni kennitölu í einu eða að viðhalda afriti af þjóðskrá innan Dynamics 365 Finance & Operations. Tenging við þjóðskrá tryggir réttar upplýsingar og bætir gæði grunngagna.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Advania Bankalausnir tryggja minni handavinnu og betri yfirsýn

Advania Bankalausnir nær yfir breiða virkni frá innheimtu yfir í greiðslur og tengdar þjónustur. Olga Helena kynnti helstu möguleika lausnarinnar og fór yfir nýjungar. Advania Bankalausnir bjóða upp á rafrænar tengingar við alla íslensku bankana þar sem hægt er að sinna allri helstu bankaþjónustu beint frá vinnustöð notanda. Það er auðvelt að stofna kröfur og innheimta í gegnum rafrænar þjónustur.

Greiðslur viðskiptavina eru sóttar með sjálfvirkum keyrslum reglulega og þannig er tryggt að staða viðskiptavina sé rétt og það sparast mikil vinna við handfærslu.  Í gegnum Advania Bankalausnir er einnig hægt að senda greiðslur til lánardrottna og lesa inn millifærslur. Með rafrænum bankaafstemmingum er leikur einn að stemma af stöðu í banka við stöðu innan kerfis. Olga fór yfir fjölmarga fleiri möguleika innan Advania Bankalausna og lagði áherslu á að lausnin er hönnuð í samvinnu við notendur.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Betra vinnuferli hjá atNorth

María Vilborgardóttir frá atNorth sagði frá ástæðum þess að Dynamics 365 Finance & Operations var valið sem viðskiptakerfi og hver reynsla þeirra er af því að nota Advania Bankalausnir og Advania Lausnapakka. Fyrirtækið er ört vaxandi og hafði þörf fyrir áreiðanlegt og stórt viðskiptakerfi en atNorth er leiðandi norrænt gagnaverafyrirtæki með sérsniðnar lausnir á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi. Þau eru að nýta lausnirnar meðal annars fyrir greiðslur lánardrottna, stofnun krafna og innheimtu, mánaðaruppgjör og afstemmingar auk sendinga á verktakamiðum og virðisaukaskattsskýrslum til Ríkisskattstjóra.

Helstu áskoranir sem þurfti að leysa voru mikil handavinna í bankafærslum og afstemmingum á bankareikningum og lánardrottnum auk þess sem ör vöxtur hægði á viðbragðstíma við frávikum. Það þurfti betri yfirsýn og minnka hættu á ónákvæmri spá- og áætlanagerð.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

María fór yfir hvernig vinnuferli hennar sem gjaldkera hefur batnað frá því að Advania Bankalausnir og Advania Lausnapakki voru teknir í notkun. Rekjanleiki er auðveldur og stuttar leiðir að því að sækja upplýsingar, til dæmis ástæður þess að reikningur hefur ekki verið greiddur. Greiðsluferlið er skilvirkara, vinna við greiðslubunka þægilegra og yfirsýn mjög skýr. Ólíkar deildir innan fyrirtækisins geta unnið vel saman og fyrir fjármálasviðið hefur kerfið eflt stjórnhætti í sjóðstýringu.

María lagði áherslu á hvað samskipti og samvinna við Advania hefur gengið vel og skilað góðum árangri. Hún mælti með að fylgjast með uppfærslum sem Advania gefur út, auk þess að vinna með ráðgjöfum Advania og koma ábendingum um nýjungar áfram.

Fleiri fréttir

Blogg
12.11.2014
Auðveldara er að stela fjármunum með því að komast yfir kreditkortaupplýsingar en að ræna bankaútibú
Blogg
04.11.2014
„Alverslun“ mun taka við þegar netverslanir og hefðbundnar verslanir renna saman í eitt á næstu misserum.
Blogg
29.10.2014
Á hverju ári kemur ný útgáfa af TOK viðskiptakerfinu frá Advania.
Blogg
22.10.2014
Stundum þarf ekki annað en bilaðan harðan disk til að stefna rekstri heilu fyrirtækjanna í voða.
Blogg
15.10.2014
Þann 17. október hefst skemmtilegur landsleikur í lestri sem ber heitið Allir lesa. Leikurinn er á vegum Miðstöðvar íslenskra bókmennta og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO.
Blogg
08.10.2014
Evrópska forritunarvikan (EU CodeWeek) verður haldin dagana 11. – 17. október. Verkefnið er hluti af áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að efla stafræna færni (e-skills).
Blogg
01.10.2014
Þegar öllu er á botninn hvolft er einn mikilvægasti þáttur í rekstri fyrirtækja að tryggja tekjuflæði og rétt uppgjör á bókhaldi.
Blogg
24.09.2014
Við hjá Advania héldum okkar fjölmennustu Haustráðstefnu til þessa 12. september síðastliðinn. Hér eru nokkrir fyrirlestrar
Blogg
17.09.2014
Svokallaðar ofurtölvur verða sífellt mikilvægari í vísindarannsóknum nútímans.
Blogg
10.09.2014
Það er ekki nóg að fá góða hugmynd til að það sé hægt að kalla það nýsköpun heldur þarf framkvæmdin að fylgja.
Blogg
03.09.2014
Ég tók við sem tæknistjóri Nordic Ecolabel í ársbyrjun 2011. Mín helsta áskorun var að ekkert miðlægt upplýsingatækniumhverfi var fyrir hendi.
Blogg
26.08.2014
Hér er fjallað um nauðsyn þess að setja lög um aðgengi hér á landi og fjallað um hvað við getum lært af öðrum þjóðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.