Ralph Stocker og Þórður Ingi Guðmundsson að lokinni vel heppnaðri vinnustofu.
14.05.2025Fullt út úr húsi á vinnustofu um krafta gervigreindar
Íslendingar létu ekki framhjá sér fara tækifæri til að læra af gervigreindarsérfræðingum þrátt fyrir sólríka daga í Reykjavík.
Í þessari viku tekur nýsköpun yfir borgina í tilefni af Iceland Innovation Week og Advania og NVIDIA taka saman þátt í ár. Í gær var haldin sérstök vinnustofa í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni. Viðfangsefnið var hagnýting gervigreindar í íslensku atvinnulífi.
Við hófum leika á i vinnustofu þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að deila sín á milli af eigin sýn og reynslu. Fóru strax af stað áhugaverðar umræður varðandi helstu áskoranir og tækifæri sem fyrirtæki standa frami fyrir í tengslum við innleiðingu gervigreindar í sinni starfsemi. Umræðunum stýrði Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður hjá viðskiptalausnum Advania ásamt góðum hópi starfsfólks Advania.
Eftir að umræðunum lauk steig Ralph Stocker sérfræðingur hjá NVIDIA á sviðið. Fór hann í gegnum „NIM Workshop“ frá tæknirisanum. Tóku allir þátttakendur þátt á eigin tölvum á þessu gagnlega námskeiði. Sýndi hann þar meðal annars hvernig nýta má NIM vettvanginn til að einfalda og hraða útfærslu á gervigreindarlausnum. Spurningum rigndi úr salnum og er ljóst að áhuginn á að læra að nýta krafta gervigreindar fer svo sannarlega ekki minnkandi.
Viðburðurinn endaði á tengslamyndun þar sem áfram var rætt um helstu áskoranir og öll tólin og tækifærin sem í boði eru þegar kemur að gervigreind á Íslandi.