Blogg - 20. maí 2026

Gervigreind, gögn og framtíðin - Komdu á Salesforce Summit Reykjavík

Óli Þór Gunnarsson
Vörustjóri

Aron Kári Aðalsteinsson

Hvernig eru fyrirtæki að nota gervigreind í dag, ekki í prufuverkefnum, heldur í raunverulegum rekstri? Þann 4. júní fáum við svör við þeirri spurningu þegar Salesforce Summit verður haldið í Reykjavík.

Salesforce Summit Reykjavík er viðburður þar sem leiðtogar í atvinnulífinu, sérfræðingar og allir sem hafa áhuga á CRM, gögnum og gervigreind hittast til að ræða það sem skiptir máli: hvernig þessi tækni er að breyta rekstri í alvöru, hvort sem þú ert þegar að nýta Salesforce eða ert að skoða möguleikana í fyrsta sinn.

Dagskráin

Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 4. júní frá kl. 8:30 til 13:00 á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Dagskráin fer yfir þau svið sem skipta mestu máli:

  • 08:30 – 09:00 – Registration and Networking
  • 09:00 – 09:45 – Opening Keynote; From Data to Decisions – The AI-powered Enterprise
  • 9:45 – 10:00 – Networking Break
  • 10:00 – 10:30 – Marketing Reimagined: Personalization at Scale with AI
  • 10:30 – 10:45 – Break
  • 10:45 – 11:15 – Sales Transformation: Smarter Pipelines, Faster Deals
  • 11:15 – 11:30 – Coffee Break
  • 11:30 – 12:00 – Service Excellence: Intelligent, Proactive Customer Support
  • 12:00 – 12:15 – Break
  • 12:15 – 12:45 – Agentforce in Action: Your Digital Workforce
  • 12:45 – 13:00 – Closing & Next Steps: Turning Insight into Action

Agentforce – þegar gervigreind fer að vinna

Eitt af þeim efnum sem við hlökkum hvað mest til er kynning á Agentforce. Gervigreindarerindrekar (AI agents) sem styðja starfsmenn þvert á deildir, ekki sem tilraunaverkefni, heldur sem hluti af daglegum rekstri.

Þeir svara spurningum, undirbúa fundi, taka saman erindi og sinna verkefnum, allt byggt á traustum viðskiptagögnum í Salesforce. Ef þú hefur verið að velta fyrir þér hvað gervigreind getur raunverulega gert í þínum rekstri, hvort sem þú ert þegar með Salesforce eða ert að skoða lausnina, þá er þetta svarið.

Frá vel heppnuðum viðburði Salesforce og Advania á Hilton á síðasta ári.

Frá vel heppnuðum viðburði Salesforce og Advania á Hilton á síðasta ári.

Við hjá Advania verðum þar

Advania er leiðandi Salesforce-samstarfsaðili á Íslandi. Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að nýta Salesforce til fulls, allt frá uppsetningu og innleiðingu til þess að fá raunverulegt virði úr gögnum og gervigreind.

Hvort sem þú ert þegar Salesforce-notandi eða ert að taka fyrstu skrefin í að skoða hvað lausnin getur gert fyrir þig, getum við hjálpað þér að finna bestu leiðina áfram. Komdu og kynnstu möguleikunum, við sjáumst þar.

Skráðu þig – það er gjaldfrjálst

Fimmtudagur, 4. júní 2026

Kl. 8:30–13:00

Hilton Reykjavík Nordica - Suðurlandsbraut 2, Reykjavík

Fleiri fréttir

Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.