Blogg - 4. júní 2026

Gervigreindarkvíðinn og mótsögn Jevons

Þórður Ingi Guðmundsson
forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania

Fyrir stuttu heyrði ég manneskju sem ég þekki segja; „Til hvers að vera að eyða tímanum í að læra tölvunarfræði ef gervigreind er hvort sem er að fara að leysa þetta í framtíðinni?“

Þetta var ekki í fyrsta skipti sem ég heyrði sambærilegar vangaveltur. Það má því segja að upp sé komið fyrirbæri sem mætti kalla „gervigreindarkvíði“, kvíði yfir því hvaða sess fólk  og störfin sem þau sinna muni eiga í heimi sem er í síauknum mæli drifinn áfram af gervigreind. Gervigreindarkvíðinn er skiljanlegur, en er víst að framtíðin verði sú sem margir óttast hvað mest?

Gervigreindarbyltingin er til að mynda þegar farin að stuðla að auknum afköstum sérfræðinga. Skýrasta birtingarmyndin eru störf hugbúnaðarsérfræðinga, þar sem gervigreindartól eru farin að leysa mikið af handvinnunni við að skrifa kóða. Ef við gefum okkur að einhvers konar almáttug gervigreind (AGI) sé ekki handan við hornið vaknar spurningin; hvaða áhrif  mun þessi þróun hafa á þau störf sem hún hefur hvað mest áhrif á?

Eitt sem er gagnlegt að horfa til í þessu samhengi er mótsögn Jevons (Jevon’s paradox). Samkvæmt henni geta tækniframfarir sem stuðla að skilvirkari notkun auðlinda,  til dæmis hugbúnaðarsérfræðinga, leitt til þess að samfélagið noti meira af þeirri auðlind, ekki minna. Ástæðan er sú að þegar kostnaður við til dæmis hugbúnaðarþróun lækkar getur það kallað fram dulda eftirspurn, skapað ný notkunartilvik sem áður voru ekki talin fýsileg og opnað á fleiri tækifæri sem áður þóttu of kostnaðarsöm, tímafrek eða flókin.

Ef við höldum áfram með dæmið um hugbúnaðarsérfræðinga er auðvelt að ímynda sér öll þau kerfi og lausnir sem eru orðin úrelt og gætu farið í endurnýjun lífdaga. Við það bætast ótal  tækifæri til að þróa nýjar vörur og þjónustur sem eru sveigjanlegri og betur aðlagaðar að þörfum einstaklinga og fyrirtækja en það sem hefur staðið til boða hingað til.

Svipaða sögu má yfirfæra á fleiri störf þar sem eftirspurn hefur verið meiri en framboð og verðið því orðið þröskuldur fyrir frekari eða almennari notkun. Þá þarf að spyrja sig; Hvert er raunverulegt virði starfsins? Í tilfelli hugbúnaðarsérfræðinga felst virðið ekki fyrst og fremst í því  að skila af sér kóða, heldur í því að skapa vörur og þjónustur sem skapa raunverulegt virði fyrir einstaklinga, fyrirtæki og samfélög.

Ólíkt því sem oft er haldið fram gæti því eftirspurn eftir mörgum þeirra starfa sem verða fyrir áhrifum gervigreindar því aukist frekar en minnkað.

Fleiri fréttir

Blogg
20.02.2013
Flest erum við háð tölvunni okkar í leik og starfi og finnst afleitt ef hún bilar. Hér eru fimm einföld ráð til að komast hjá vandræðum.
Blogg
12.02.2013
Hvað einkennir gott launakerfi? Hvernig er hægt að fá sem mest út úr launakerfinu?
Blogg
06.02.2013
Hin árlega Citrix Synergy ráðstefna var haldin í Barcelona í lok síðasta árs.
Blogg
30.01.2013
Hvernig eru snjalltækin að birta vefina okkar? Er skalanleg vefhönnun enn ein tískubóla í vefhönnun eða er hún komin til að vera?
Blogg
23.01.2013
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Blogg
29.11.2012
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Blogg
22.11.2012
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle kerfið fyrir íslenska ríkið liggur nú fyrir.
Blogg
21.11.2012
Oft er talað um að hjarta fyrirtækis sé birgðirnar. Án birgða flæðir ekki fjármagn inn í fyrirtækið og ef birgðir eru of miklar þá er of mikið fjármagn bundið í birgðunum. Eins mikilvægt og það er fyrir okkur mennina að hugsa vel um hjartað þá gildir það sama um birgðirnar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.