Blogg - 20. apríl 2026

Kolefnisspor vara nú aðgengilegt í vefverslun Advania

Ásta Maack
verkefnastjóri sjálfbærni hjá Advania

Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.

Með því að birta kolefnisspor vara viljum við styðja viðskiptavini okkar í að velja búnað með meiri vitund um loftslagsáhrif og um leið gera sjálfbærnivinnu Advania sýnilegri og aðgengilegri.

Hvað þýðir kolefnisspor vara?

Kolefnisspor vara er birt í kgCO₂e (kílógrömm koltvísýringsígilda). Það er samanburðarhæf mælieining sem tekur saman áhrif mismunandi gróðurhúsalofttegunda í eitt gildi. Þannig verður einfaldara að bera saman loftslagsáhrif ólíkra vara – hvort sem um ræðir tölvur, skjái eða annan tæknibúnað.

Vönduð og gagnsæ aðferðafræði

Á bak við þessar tölur liggur mikil vinna og vönduð aðferðafræði, sem Advania hefur þróað í nánu samstarfi við Kolku.

Útreikningar okkar byggja fyrst og fremst á:

  • Lífsferilsgreiningum (LCA – Life Cycle Assessment) og
  • Product Carbon Footprint (PCF) gögnum frá framleiðendum, þegar slík gögn eru aðgengileg. 

Í þeim tilfellum þar sem framleiðendur hafa ekki birt sértækar LCA- eða PCF-niðurstöður notum við viðurkennda losunarstuðla frá DEFRA og reiknum kolefnisspor út frá þyngd vöru. Þessi nálgun tryggir samræmi, fagmennsku og gagnsæi og byggir á bestu fáanlegu gögnum hverju sinni.

Í dag er kolefnisspor varanna að langmestu leyti byggt á vegnu meðaltali LCA- og PCF-gagna ásamt stöðluðum útreikningum út frá þyngd.

Af hverju er ekki kolefnisspor á öllum vörum?

Við gátum ekki birt kolefnisspor á öllum vörum, einfaldlega vegna þess að þær upplýsingar eru ekki alltaf aðgengilegar hjá framleiðendum. Við tókum þó meðvitaða ákvörðun um að birta kolefnisspor á sem flestum vörum frekar en engum, til að skapa fyrr raunverulegt virði fyrir viðskiptavini.

Markmiðið er skýrt: 
Að gera upplýsingar um loftslagsáhrif tækjabúnaðar sýnilegri, þannig að bæði viðskiptavinir og almenningur geti tekið upplýstari ákvarðanir og stigið skref í átt að sjálfbærari framtíð.

Þetta er lifandi vegferð

Kolefnisspor vara í vefverslun Advania er ekki lokaafurð, heldur hluti af þróunarvinnu til framtíðar. Við munum uppfæra kolefnisspor árlega, í takt við nýjustu aðgengilegar upplýsingar frá framleiðendum og áframhaldandi þróun á gögnum og aðferðafræði.

Eftir því sem nákvæmari og vörusértækari LCA-gögn verða aðgengileg er stefnt að því að birta enn ítarlegri upplýsingar niður á hverja tegund raftækja.

Ef spurningar vakna um kolefnisspor vara eða aðferðafræðina á bakvið útreikningana er alltaf hægt að hafa samband við mig.

Fleiri fréttir

Fréttir
20.10.2026
Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.
Blogg
19.10.2026
Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.
Fréttir
15.10.2026
Í Öryggisoktóber bjóðum við upp á fjóra opna veffundi þar sem netöryggi á tímum gervigreindar er í fyrirrúmi.
Power Platform, Blogg
15.10.2026
Á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í ár var Advania með bás þar sem við kynntum Power Platform lausnir sem hjálpa sveitarfélögum að einfalda ferla, bæta þjónustu og nýta tíma starfsfólks betur.
F&O, Blogg
14.10.2026
Viðskiptalausnasvið Advania hélt morgunverðarfund þann 13. október 2026. Kynntar voru íslenskar sérlausnir fyrir Dynamics 365 Finance & Operations.
Blogg
12.10.2026
Fleiri bókanir og fleiri gestir eru góðar fréttir. En vöxtur skilar sér ekki alltaf í betri afkomu. Oft fylgir honum meiri handavinna og meira álag á starfsfólk, án þess að framlegðin eða upplifun gesta batni að sama skapi.
Blogg
12.10.2026
Í mörgum fyrirtækjum fer stór hluti markaðs- og sölukostnaðar í að ná til nýrra viðskiptavina. Það er skiljanlegt. Vöxtur er oft mældur í nýjum samningum, nýjum viðskiptum og nýjum tækifærum. Á sama tíma gleymist stundum að stærstu vaxtartækifærin liggja oft hjá þeim viðskiptavinum sem eru þegar í viðskiptum.
Fréttir
08.10.2026
Advania hefur hlotið verðlaunin Innovation Partner of the Year frá Omdia fyrir gervigreindarstefnu félagsins og þróun Advania ALT. Tilkynnt var um verðlaunin á Canalys Forum EMEA í Barcelona í dag.
Fréttir
03.10.2026
Mannauðsdagurinn fór fram í Hörpu föstudaginn 2. október og Advania var einn af stærstu samstarfsaðilum ráðstefnunnar eins og síðustu ár. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti vettvangur stjórnunar og mannauðsmála hér á landi, þar sem mannauðsfólk, stjórnendur og ráðgjafar úr öllu atvinnulífinu koma saman.
Blogg
01.10.2026
Það var mikið um að vera á Xperience 2026, árlegri ráðstefnu Genesys í Las Vegas í byrjun september, og nýjungarnar voru bæði margar og spennandi. Skilaboðin voru skýr: tilraunaskeiði gervigreindar í þjónustu er lokið og nú snýst allt um að láta gervigreind, fólk og kerfi vinna saman í takt.
Fréttir
30.09.2026
Errol Norlum hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gervigreindar (e. Chief AI Officer) hjá Advania samstæðunni og tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar frá og með 1. október. Hlutverk hans er að samræma gervigreindarlausnir Advania þvert á öll markaðssvæði fyrirtækisins í Evrópu.
Blogg
30.09.2026
September er einstakur mánuður í mínum huga. Hann markar eins konar seinni meðbyr ársins.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.