Díana Björk Olsen, forstöðumaður Mannauðslausna Advania.

Fréttir - 1. október 2026

Mannauðslausnir Advania kynna Teamtailor, nýtt ráðningarkerfi á Íslandi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Mannauðslausnir Advania hafa bætt Teamtailor við vöruúrval sitt, nútímalegu ráðningarkerfi sem er nýtt á íslenskum markaði. Advania er viðurkenndur samstarfsaðili Teamtailor og lausnin verður kynnt gestum á Mannauðsdeginum í Hörpu, föstudaginn 2. október.

„Mannauðsteymi Advania hefur nú þegar hafið innleiðingu á Teamtailor og við erum ótrúlega spennt að geta boðið upp á þessa lausn á Íslandi. Um er að ræða glænýtt og öflugt kerfi sem hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum," segir Díana Björk Olsen, forstöðumaður Mannauðslausna Advania.

„Teamtailor er nútímalegt ráðningarkerfi sem hjálpar fyrirtækjum að laða að, ráða og taka á móti framúrskarandi starfsfólki. Lausnin einfaldar ráðningarferlið, sparar tíma og tengist öðrum mannauðslausnum okkar eins og H3, þannig að upplifunin verður heildstæð, bæði fyrir umsækjendur og vinnuveitendur."

Mannauðslausnir Advania verða með sérstakan Teamtailor bás á Mannauðsdaginn í Hörpu þar sem sérfræðingar frá Teamtailor svara spurningum gesta ráðstefnunnar ásamt sérfræðingum Advania.

Vöxtur hefst með rétta fólkinu

Teamtailor er meira en hefðbundið ráðningarkerfi. Það er heildstæður vettvangur fyrir ráðningarmarkaðssetningu þar sem fyrirtæki geta kynnt merki sitt, menningu og starfsfólk, og umsækjendur geta búið til eigin prófíl og fylgst með störfum í boði. Kerfið er notað af yfir 13.000 fyrirtækjum í meira en 90 löndum.

Gervigreind er innbyggð í lausnina í gegnum gervigreindarerindreka, AI Co-pilot, sem aðstoðar meðal annars við leit í umsækjendagrunni, val og mat á umsækjendum, gerð viðtalsspurninga, samantektir á ferilskrám og gerð atvinnuauglýsinga. Þannig dregur Teamtailor úr handavinnu ráðningaraðila og gefur mannauðsteymum meiri tíma fyrir mannlega þáttinn.

Með Teamtailor styrkir Advania stöðu sína á ráðningarmarkaði og getur nú boðið viðskiptavinum leiðandi verkfæri til að finna og ráða rétt fólk á hraðari og skilvirkari hátt. Lausnin tengist H3, launa- og mannauðskerfi Advania, þannig að ráðningar, nýliðun og mannauðsferlar vinna vel saman.

Ráðningar þurfa ekki að vera flóknar.

Ráðningar þurfa ekki að vera flóknar.

Þann 12. október fer svo fram veffundur þar sem kafað verður dýpra ofan í þessa nýju viðbót við vöruframboð Advania.

Fleiri fréttir

Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.