Hvað verður fjalla um á fundinum?
Á þessum veffundi skoðum við hvernig stafrænar lausnir geta hjálpað fyrirtækjum að takast á við ráðningar, án þess að fórna mannlegu samskiptunum.
Þegar tæknin sér um það sem má einfalda geta ráðningarteymi einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli - fólkinu.
Hvað er Teamtailor?
Stutt og hnitmiðuð kynning á Teamtailor með fókus á það gerir lausnina ólíka hefðbundnum ráðningarkerfum.
Hvað gerir ráðningarferlið betra?
Hvernig nútímaleg ráðningartækni getur einfaldað ferlið og stutt við bæði umsækjendur og ráðningarteymi.
Upplifun umsækjenda
Hvernig þú tryggir góða upplifun fyrir alla umsækjendur - jafnvel þegar verið er að ráða í miklum mæli.
Meiri tími fyrir mannlega þáttinn
Hvernig hægt er að draga úr umsýslu og handavinnu svo ráðningarteymið geti einbeitt sér að fólkinu, ekki handavinnunni.
Vinnustaðurinn sem vörumerki
Hvernig starfsferilasíðan getur orðið einn öflugasti miðillinn í ráðningarferlinu og gefið umsækjendum skýrari mynd af vinnustaðnum.
Samstarf Teamtailor & Advania
Við skoðum hvernig lausnirnar vinna saman og hvernig samþætt tækniumhverfi getur skapað betri upplifun í bæði ráðningum og mannauðsmálum.
Hvort sem þú ert að stækka teymið, endurhugsa ráðningarferlið eða vilt einfaldlega sjá hvernig nútímalegar ráðningar líta út í framkvæmd, þá er þessi veffundur fyrir þig.