Rauði krossinn hefur tekið í notkun Salesforce Nonprofit Success Pack

Sögur frá viðskiptavinum - 23. mars 2023

Rauði krossinn tekur á móti framtíðinni með Salesforce

Eftir að hafa tekið í notkun Salesforce Nonprofit Success Pack hefur Rauði krossinn nú í fyrsta sinn 360 gráðu sýn á umfangsmikla starfsemi sína og þjónustu.

Innleiðing Rauða krossins á Salesforce í samstarfi við Advania gerði þeim kleift að sjálfvirknivæða mikið af verkefnum sem áður kröfðust margra handtaka, eins og t.d. að bóka og stýra skyndihjálparnámskeiðum sem um 10.000 manns sækja ár hvert. Með rauntímagögnum og betri yfirsýn er félagið betur í stakk búið til að taka gagnadrifnar ákvarðanir á mun skemmri tíma en áður.

„Við vildum taka ákvarðanir byggðar á rauntímagögnum og nýta okkur sjálfvirkni til að létta álag og byrði á fólkinu okkar. Mikilvægast var að við vildum sameina starfsemi okkar á einum stað og nota Salesforce sem vettvang fyrir alla okkar starfsemi. Í Fyrsta skipti höfum við nú fullkomna 360 gráðu sýn á umfang starfsemi okkar, þjónustuna sem við veitum og árangurinn sem við erum að skila”

Margrét Gíslínudóttir, gæðateymisstjóri hjá Rauða krossinum

Félagið setti í kjölfarið nýja heimasíðu í loftið með öruggri gátt sem gerir hlutaðeigendum s.s. sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum kleift að stofna sinn eigin aðgang þar sem rauntímagögnum er safnað og uppfærð í Salesforce. Með samþættingu við íslenska ríkið uppfærast þessi gögn svo sjálfkrafa í Þjóðskrá, öllum landsmönnum til hagsbóta. Notendur geta þá einnig hlaðið niður skírteinum frá þeim námskeiðum sem þeir hafa lokið, sem sparar teyminu fjölda tíma í hverjum mánuði. Salseforce Survey Response sendir svo sjálfvirkan spurningalista eftir hvert námskeið, sem veitir skjóta endurgjöf um námskeiðið frá þátttakendum. Lausnin opnaði einnig fyrir ný tækifæri, til að mynda með aðgangi að gögnum sem er hægt að greina og nýta í fjáröflunarskyni og í samskiptum. Það hefur verið frábært fyrir Advania að koma að þessu verkefni fyrir Rauða krossinn og við hlökkum til að fylgjast áfram með því hvernig þau hagnýta tæknina til að hjálpa sér í því mikilvæga starfi sem þau sinna.

Fleiri fréttir

Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.