Blogg - 5. október 2026

Þrjú skref að öruggri innleiðingu Copilot

Andri Már Helgason
Vörustjóri Power Platform

Stjórnendur margra fyrirtækja sjá tækifæri í Copilot og gervigreind, en færri hafa skýra og skilgreinda leið til að umbreyta notkuninni í mælanlegt virði. Þegar grunnurinn er traustur, fólkið tilbúið og erindrekarnir byggðir á réttum forsendum verður gervigreind hluti af rekstrinum en ekki aðeins spennandi hugmynd.

Notkun gervigreindar er orðin hluti af stefnumarkandi atriðum í rekstri flestra fyrirtækja þessa dagana. Stjórnendur finna fyrir auknum þrýstingi um að nýta nýja tækni til að auka framleiðni, bæta þjónustu og skapa samkeppnisforskot. Á sama tíma glíma margir við sömu spurningarnar:

  • Hvar eigum við að byrja?
  • Hvernig tryggjum við að fjárfestingin skili raunverulegu virði?
  • Hvernig forðumst við að eyða tíma og fjármagni í verkefni sem skila litlum árangri?

Vandamálið er sjaldnast skortur á hugmyndum. Stjórnendur flestra fyrirtækja sjá fjölda möguleika fyrir Microsoft Copilot og gervigreind. Áskorunin felst fremur í því að breyta þeim hugmyndum í mælanlegt virði með markvissri innleiðingu.

Þess vegna nálgast Advania innleiðingu á Microsoft Copilot og sértækum erindrekum í Copilot Studio með þriggja þrepa vegferð. Vegferð sem byrjar á traustum grunni, byggir síðan upp hæfni fólksins og endar með sértækum lausnum sem skila raunverulegu virði.

Virði verður ekki til með leyfum einum saman

Mörg fyrirtæki hefja gervigreindarvegferðina með því að kaupa Copilot leyfi. Það er skiljanlegt. Copilot getur sparað tíma í tölvupósti, fundarundirbúningi, skjalagerð og upplýsingaleit.

En leyfi ein og sér skapa ekki virði. Raunverulegt virði verður þegar starfsfólk breytir vinnubrögðum sínum, þegar gögn fyrirtækisins eru aðgengileg á öruggan hátt og þegar gervigreind tekur þátt í raunverulegum verkferlum fyrirtækisins.

Þess vegna þarf að hugsa um innleiðingu sem vegferð frekar en hugbúnaðarkaup.

Skref 1: Grunnurinn að öllu virði

Áður en fyrirtæki geta nýtt Copilot af fullum krafti þurfa þau að vita hvaða gögn Copilot hefur aðgang að og hversu vel umhverfið er undirbúið fyrir slíka notkun.

Copilot sér það sem starfsfólkið sér, þ.e. Copilot erfir þær heimildir sem þegar eru til staðar í Microsoft 365 umhverfinu. Ef gögnum hefur verið deilt of vítt eða aðgangsstýringar eru óskýrar verða þær upplýsingar sýnilegri og auðveldari í notkun með tilkomu Copilot.

Þess vegna hefst vegferðin með Vörðu og öryggisherðingu á SharePoint og OneDrive. Þar er kortlagt hvaða gögn eru til staðar, hver hefur aðgang að þeim og hvar áhætta eða ofdeiling kann að vera til staðar. Í framhaldinu eru gerðar markvissar úrbætur sem skapa öruggan grunn fyrir áframhaldandi innleiðingu.

Þetta skref snýst ekki eingöngu um öryggi heldur um að skapa forsendur fyrir virði.

Skref 2: Fólkið skapar árangurinn

Þegar grunnurinn er orðinn traustur, tekur næsta verkefni við, þ.e. að hjálpa starfsfólki að nýta Copilot í eigin störfum.

Reynslan sýnir að fyrirtæki ná mestum árangri þegar starfsfólk lærir að nota Copilot út frá sínum eigin gögnum, eigin verkefnum og eigin vinnuflæði. Þá verður Copilot ekki bara einhver tækninýjung heldur vinnufélagi sem styður við daglegt starf.

Þess vegna leggur annað skref vegferðarinnar áherslu á fræðslu, vinnustofur og leiðtogakennslu. Markmiðið er að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvernig gervigreind getur skapað virði í hverju hlutverki og hvernig árangurinn verður mældur.

Þegar fólk fer að vinna á nýjan hátt verður virðið sýnilegt í formi sparaðs tíma, bættra vinnubragða og aukinnar framleiðni.

Skref 3: Erindrekar sem færa virðið upp á næsta stig

Á einhverjum tímapunkti nær fyrirtæki þeim áfanga þar sem spurningin er ekki lengur:

„Hvernig getur Copilot hjálpað starfsmanninum?“

Heldur:

„Hverning getur gervigreind hjálpað fyrirtækinu?“

Þá hefst þriðja skrefið í þessari vegferð.

Með Copilot Studio er hægt að byggja sértæka erindreka sem sinna afmörkuðum verkefnum, vinna með skilgreind gögn og styðja tiltekna verkferla. Þeir geta svarað spurningum úr innra regluverki, sinnt fyrirspurnum þjónustuborðs, sótt upplýsingar í viðskiptakerfi eða fylgt málum eftir.

Þar verður stærsta virðissköpunin til. Ekki vegna þess að einstaklingar spara nokkrar mínútur í senn, heldur vegna þess að heilir verkferlar verða skilvirkari og sjálfvirkari.

Frá óvissu yfir í mælanlegt virði

Stjórnendur fyrirtækja upplifa oft að gervigreindarsviðið sé fullt af loforðum en skorti skýr svör um kostnað, arðsemi og næstu skref.

Þriggja þrepa vegferð Advania er svar við þeirri óvissu.

  1. Fyrst er byggður traustur og öruggur grunnur með Vörðu.
  2. Síðan er fjárfest í hæfni starfsfólks.
  3. Að lokum er farið í sértæka erindreka sem leysa raunverulegar viðskiptaáskoranir.

Með þessari nálgun skapast skýr tenging milli fjárfestingar og árangurs. Fyrirtækið fær ekki aðeins aðgang að nýrri tækni heldur skilgreinda leið til að umbreyta henni í raunverulegt og mælanlegt virði.

Röðin skiptir máli

  • Það er auðvelt að byrja á erindrekum.
  • Það er auðvelt að kaupa Copilot leyfi.
  • Það er auðvelt að ræða um gervigreind.

En fyrirtæki sem vilja ná raunverulegum árangri byrja á réttum stað. Þau byggja grunninn. Þau efla fólkið. Þau útvíkka síðan notkunina með erindrekum.

Þannig verður Copilot ekki bara enn einn kostnaðarliður í bókhaldinu, erindrekarnir ekki misheppnuð tilraun og gervigreindin ekki óljóst framtíðarverkefni.

Gervigreindin verður að mælanlegu virði.

Fleiri fréttir

Blogg
16.06.2015
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Blogg
11.06.2015
Lausnir sem halda utan um og auðvelda samskipti fyrirtækja við viðskiptavini verða sífellt mikilvægri.
Blogg
10.06.2015
Eins og fram hefur komið hefur Microsoft valið Advania sem samstarfsaðila ársins, Partner of Year, 2015. Þetta er mikill heiður enda er samkeppnin hörð á þessum markaði.
Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.