Blogg - 28. mars 2025

Verkada One í London

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Verkada One var nú haldin í fyrsta skipti í London þann 25. mars 2025 og vakti mikla lukku meðal sérfræðinga og viðskiptavina í öryggismálum.

Verkada, sem er leiðandi í skýjatengdum öryggislausnum, hefur byggt upp sterkt samstarf við Advania, sem hefur reynst lykilatriði í að koma lausnum Verkada á framfæri á Íslandi og víðar  enda fer þeim ört fjölgandi  sem nýta sér lausnir Verkada. Lausnirnar, sem sameina myndavélar, aðgangsstýringu, umhverfisskynjara og fleira í einu samþættu kerfi, hafa reynst fyrirtækjum og stofnunum afar gagnlegar við að tryggja öryggi og yfirsýn. Verkada hefur nú yfir 30.000 viðskiptavini á heimsvísu, og fjöldi þeirra eykst stöðugt.

Á Verkada One í London var lögð áhersla á nýjungar í öryggistækni og hvernig lausnir Verkada geta hjálpað fyrirtækjum að vera betur undirbúin fyrir framtíðina. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast lausnunum í raunverulegum aðstæðum og tengjast öðrum sérfræðingum í greininni.

Það helsta sem kom fram á viðburðinum:

Innsýn inn í öryggi með hjálp gervigreindar: Fundur sem fór bak við tjöldin með Verkada AI Leitarvélinni. Leiddur af David Murguia, Yfirvörustjóra, og Maurice de Haan, verkfræðingi fyrirtækjalausna. Þeir fóru yfir hvernig gervigreind eflir öryggisaðgerðir.

Leiðsögn með sérfræðingum: Fróðlegar kynningar fjölluðu um lykilatriði. Þar á meðal um gervigreindardrifið öryggi, nýjungar í aðgangsstýringu og viðskiptavinasögur.

Lifandi sýnikennsla: Þátttakendur upplifðu hnökralausa samþættingu milli Verkada aðgangsstýringar og SimonsVoss SmartIntego þráðlausra lása, sem bjóða upp á auðvelda fjarstýringu, lifandi atburðaskráningu hurða og aukinn sýnileika öryggis.

Verkleg þjálfun: Sérstakur þjálfunarfundur veitti þátttakendum djúpa innsýn í öryggisvettvang Verkada.

Netagerð (networking): Þátttakendur tengdust leiðtogum í greininni, jafningjum og sérfræðingum Verkada, og áttu innihaldsrík samtöl um öryggisáskoranir og lausnir.

Helstu niðurstöður:

Vaxandi notkun: Verkada lausnins stjórnar nú aðgangi fyrir yfir 3,7 milljónir notenda og skráir yfir 1,5 milljónir gesta á hverjum mánuði. Þetta sýnir vaxandi eftirspurn eftir öryggislausnum á fyrirtækjastigi.

Innsýn inn í raunveralegar aðstæður: Á viðburðinum fengu gestir góð ráð og sáu dæmi úr raunheimum, sem hægt er að innleiða strax til að bæta öryggisaðgerðir.

Verkada á heima hjá Advania

Advania er sölu- og þjónustuaðili Verkada á Íslandi. Lausnin er bylting í öryggiskerfum fyrir vinnustaði - inniheldur snjallmyndavélar, aðgangsstýringu, skynjara, dyrasíma og gestamóttöku, allt tengt í gegnum skýjaþjónustu með notendavænu vefviðmóti.

Vegferðin með Verkada er bara rétt að byrja og við vonumst til þess að fleiri viðskiptavinir komi með okkur á ráðstefnuna á næsta ári. Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt kynningu og jafnvel prófa kerfið frítt.

Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.