F&O hentar gríðarmikilli starfsemi og flóknum ferlum Orkuveitunnar

Vildu lausn sem myndi þróast með sér inn í framtíðina

Orkuveitan er móðurfélag sem heldur utan um fjölbreytta og umfangsmikla starfsemi, þar á meðal Veitur, ON, Ljósleiðarann og Carbfix. Kjarnastarfsemin spannar hitaveitu, rafveitu, vatns- og fráveitu, ljósleiðararekstur og nýsköpunarverkefni á borð við föngun og förgun koltvíoxíðs.

Áskorunin

Vegna umfangs og fjölbreytileika starfseminnar stóð Orkuveitan frammi fyrir þeirri áskorun að halda utan um flókin ferli og tryggja góða yfirsýn yfir reksturinn í heild.

Á sama tíma var mikilvægt að velja lausn sem gæti þróast með fyrirtækinu til framtíðar og stutt við áframhaldandi vöxt og breytingar.

Við vorum að leita að lausn sem myndi halda utan um alla þessa flóknu ferla, en á sama tíma þróast með okkur inn í framtíðina

Anna Guðný Andersen, ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni

Við vildum tryggja að lausnin væri innleidd á staðlaðan máta og forðast mikið af séraðlögunum

Anna Guðný Andersen, ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni

Nálgunin

Við val á lausn lagði Orkuveitan áherslu á að innleiða staðlaða og sveigjanlega lausn sem myndi lágmarka þörf fyrir sérsniðnar breytingar. Jafnframt var horft til þess að lausnin tengdist þeim kerfum sem þegar voru í notkun innan fyrirtækisins.

Sérstaklega var litið til þess að byggja upp samlegð innan Microsoft Dynamics 365 vistkerfisins, þar sem Orkuveitan nýtti þegar aðrar lausnir úr sömu svítu.

Lausnin

Microsoft Dynamics 365 Finance & Operations varð fyrir valinu, sem hentaði vel þörfum Orkuveitunnar. Lausnin styður við flókið rekstrarumhverfi og gerir Orkuveitunni kleift að halda utan um fjölbreytta ferla.

Með því að velja lausn úr sömu svítu og önnur kerfi fyrirtækisins skapaðist aukinn einfaldleiki og samlegðaráhrif sem auðveldaði samþættingu og styrkti heildaryfirsýn.

Útboðsgögnin voru vegvísir að verkefninu og innleiðingunni á kerfinu sem gerði samstarfið einstaklega vel heppnað.

Niðurstöður og árangur

Innleiðingin hefur gengið vel fyrir tilstilli vegvísisins fyrir verkefnið sem tryggði skýra stefnu, gott skipulag og sameiginlegan skilning á markmiðum.

Lausnin hefur styrkt grunn Orkuveitunnar til að halda utan um flókna starfsemi og skapað betri forsendur fyrir áframhaldandi þróun og umbótum.

Með innleiðingu Dynamics 365 Finance & Operations hefur Orkuveitan styrkt stafræna innviði og lagt grunn að einfaldari og skilvirkari rekstri í framtíðinni.

Þjónustan hjá Advania hefur verið til fyrirmyndar og við finnum að það er mikill áhugi á starfseminni okkar

Anna Guðný Andersen, ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni

Útboðsgögnin voru bakbeinið í verkefninu og skilningur Advania á því sem við vildum gera hefur haldist í gegnum allt ferlið.

Þarftu að einfalda flókna starfsemi með réttu lausninni?

Hafðu samband og við skoðum málið saman.

Kynntu þér Dynamics F&O