H3 er mikilvægur hlekkur í mannauðsmálum Mosfellsbæjar

Mannauðs- og starfsumhverfissvið Mosfellsbæjar geymir allar upplýsingar um mannauðinn í H3. Einnig nota þau Vinnustund og snjallsímaforritið Smástund.
Við erum með 36 vinnustaði og launadeildin er á okkar sviði þannig að við sjáum það að reikna og greiða laun í hverjum mánuði og notum til þess  H3 mannauðslausnina frá Advania. H3 er auðvitað algjört kjarnakerfi í okkar starfsemi
Kristján segir að fyrir þau hafi skipt miklu máli að nota H3 og Vinnustund saman. Það heldur sameiginlega utan um stærstan partinn af því sem snýr að launum og viðveru sem er mjög stór hluti af því sem við erum að gera. Þannig að auðvitað sparar það okkur tíma að kerfin tali vel saman.
Við erum að nota Vinnustund sem okkar viðverukerfi og það sparar okkur heilmikinn tíma í utanumhaldi í mannauðsdeildinni. Að taka út skýrslur varðandi viðveru, að halda utan um vinnuskil hjá fólki, halda utan um orlofsréttindi og annað auðvitað skiptir okkur mjög miklu máli, að það sé allt saman rétt

Kynntu þér mannauðslausnir Advania

Mannauðslausnir Advania